Þriðja umferð Wimbledon mótsins í tennis kláraðist í dag.
Serbinn Novak Djokovic vann sigur á Lettanum Ernests Gulbis í þremur settum, 6-4, 6-1 og 7-6(7-2). Djokovic mætir Frakkanum Adrian Mannarino í 16 manna úrslitum.
Roger Federer sigraði andstæðing sinn, Mischa Zverev frá Þýskalandi 7-6(7-3), 6-4 og 6-4.
Í gær komust Rafael Nadal og Andy Murray einnig áfram í fjórðu umferðina. Spánverjinn Nadal vann Rússan Karen Khachanov í þremur settum og Murray, sem á titil að verja á mótinu, sigraði hinn ítalska Fabio Fognini 3-1.
Venus Williams komst áfram í fjórðu umferðina með 2-0 sigri á Naomi Osaka frá Japan.
Petra Kvitvova, sem talin var sigurstrangleg fyrir mótið, féll hins vegar úr leik í gær þegar hún tapaði fyrir hinni bandarísku Madison Brengle.
Þriðja umferð Wimbledon kláraðist í dag
Tengdar fréttir
Spáð sigri á Wimbledon hálfu ári eftir að verjast hnífaárás á heimili sínu | Myndband
Petra Kvitova hefur náð ótrúlegum bata líkamlega og andlega eftir skelfilegan atburð undir lok síðasta árs.
Andy Murray hóf titilvörnina á sigri
Skotinn Andy Murray vann í dag Alexander Bublik á Wimbledon mótinu í tennis
Hnéskélin fór úr lið | Myndband
Óhugnalegt atvik átti sér stað á Wimbledon-mótinu í tennis í gær en myndbandið af atvikinu er ekki fyrir viðkvæma.
Federer kallar á breytingar
Svisslenski tenniskappinn Roger Federer vill breyta reglum risamótanna til að koma í veg fyrir að menn hætti keppni vegna meiðsla.