Lögregla skaut niður mann í Kaupmannahöfn Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. júlí 2017 09:37 Lögregla í Kaupmannahöfn var kölluð út snemma í morgun vegna atviksins. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Lögregla í Kaupmannahöfn skaut mann í mjöðmina í norðvesturhluta borgarinnar snemma í morgun. Þá var sprengjusveit kölluð út á svæðinu vegna grunsamlegrar tösku, sem maðurinn benti sjálfur á, í bílnum. Lögregla hefur afgirt svæðið og ekki er lengur talin hætta á ferðum. Samkvæmt frétt danska dagblaðsins Jyllandsposten barst lögreglu tilkynning snemma í morgun um að maður sæti í bíl í norðvesturhluta borgarinnar og svæfi. Þá fékk lögregla síðar upplýsingar, frá manninum sjálfum, um að í bílnum gæti verið taska, í hverri gæti leynst eitthvað „hættulegt.“ Þegar lögregla mætti á staðinn hitti hún fyrir manninn, sem síðar varð fyrir skoti lögreglu. Þá sauð fljótt upp úr aðstæðum á vettvangi, maðurinn dró fram byssu og lögregla skaut á hann. Maðurinn tilkynnti svo um töskuna í bílnum en dró síðar fullyrðingar sínar til baka. Sprengjusveit var því kölluð út sem rannsakaði málið. Skotið hafnaði í mjöðm mannsins en ekki er hægt að gefa neitt upp um ástand hans að svo stöddu. Hann var fluttur á sjúkrahús. Þá var heldur ekki hægt að veita upplýsingar um nafn mannsins en málið er nú í rannsókn.Frétt og fyrirsögn hafa verið uppfærðar.
Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira