Von hjá Manchester United að fá Gareth Bale Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2017 09:00 Gareth Bale. Vísir/Getty
Manchester United hefur í langan tíma verið á eftir velska knattspyrnusnillingnum Gareth Bale og nú hefur smá gluggi opnast samkvæmt nýjustu fréttum frá Spáni. Telegraph fer yfir stöðu mála og af hverju ný von hefur vaknað innan raða Manchester United um að ná nú loksins að kaupa Gareth Bale. United hefur verið á eftir Bale í áratug en félagið reyndi fyrst að kaupa hann árið 2007 eða áður en Bale fór til Tottenham. Manchester United reyndi líka að „stela“ honum af Real Madrid þegar spænska félagið keypti hann frá Spurs sumarið 2013. Nú hefur smá von vaknað í herbúðum Manchester United. Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, sagði nefnilega að hann gæti ekki ábyrgst það að Gareth Bale yrði með Real-liðinu á komandi tímabili. Real Madrid er að reyna að kaupa franska undrabarnið Kylian Mbappe frá Mónakó en hann gæti kostað spænska félagið 161 milljón punda. Fjölmiðlamenn á Spáni hafa vissulega velt fyrir sér framtíð þeirra Karim Benzema og Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid en það lítur út fyrir það í dag að þeir verði áfram en að mestar líkur séu að Real Madrid selji hinsvegar Bale. Real Madrid hefur þegar selt leikmenn fyrir í kringum 90 milljón pund í sumar en félagið þarf að fá meiri pening inn ætli menn á Bernabeu að ná að safna fyrir kaupunum á Mbappe. Manchester United hefur verið á eftir Króatanum Ivan Perisic hjá Internazionale en félagið hefur ákveðið að blanda sér ekki í kapphlaupið um Neymar eða Alexis Sanchez. Líklegt er að Nemanja Matic komi til félagsins frá Chelsea en eftir stendur að knattspyrnustjórinn Jose Mourinho vill fá nýjan háklassa vængmann á Old Trafford. Bale passar fullkomlega i það form.
Enski boltinn Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Fleiri fréttir Wolves - Chelsea | Bítur botnliðið frá sér? Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sjá meira