Conte efast um metnað Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2017 10:30 Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea. Vísir/Getty
Chelsea og Tottenham voru í titilbaráttu í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem Chelsea hafði betur. Chelsea sló Tottenham einnig út úr undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Nú hefur knattspyrnustjóri ensku meistaranna í Chelsea ýjað að metnaðarleysi hjá nágrönnunum sínum í Tottenham. Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, telur nefnilega að það séu gerðar minni væntingar til Tottenham-liðsins en til annarra liða í toppbaráttunni. Totttenham hefur verið rólegt á félagsskiptamarkaðnum í sumar á meðan hin stóru liðin í kringum þau í stigatöflunni á síðasta tímabili hafa safnað að sér leikmönnum. „Það er enginn harmleikur þótt að Tottenham vinni ekki titilinn,“ sagði Antonio Conte í viðtali við BBC. „Það er enginn harmleikur þótt þeir komist ekki í Meistaradeildina eða þá að þeir detti út í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það er heldur enginn harmleikur þótt þeir detti síðan út í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar,“ sagði Conte. „Kannski fyrir félög eins og Chelsea, Arsenal, Manchester City, Manchester United og jafnvel Liverpool, þá væri slíkt harmleikur. Við verðum bara að átta okkur á stöðu liðanna,“ sagði Conte. Chelsea fékk sjö stigum meira en Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. „Öll félög verða átta sig á því hvar metnaður þeirra liggur. Ef metnaður þeirra liggur í því að berjast um titla eða vinna Meistaradeildina þá þurfa þessi félög að kaupa dýra leikmenn. Án þess verða þau bara áfram á sínum stað. Þetta er einfalt,“ sagði Conte. Eina sem hefur gerst hjá Tottenham á félagsskiptamarkaðnum í sumar er að félagið seldi landsliðsbakvörðinn Kyle Walker til Manchester City fyrir 45 milljónir punda. Félögin í ensku úrvalsdeildinni hafa eytt meira en 850 milljónum punda í leikmenn í sumar. Chelsea hefur borgað um 130 milljónir punda fyrir þrjá leikmenn eða þá Alvaro Morata, Tiemoue Bakayoko og Antonio Rudiger. Tottenham hefur lagt það í vana sinn að kaupa leikmenn seint í félagsskiptaglugganum en undanfarin ár hafa nýir menn verið að detta inn í ágúst. Það gæti vel verið að svo verði einnig nú. Hver veit nema þessi orð Conte komi einhverju á hreyfingu.Antonio Conte með Mauricio Pochettino, stjóra Tottenham.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Enski boltinn Fleiri fréttir Wolves - Chelsea | Bítur botnliðið frá sér? Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sjá meira