Mourinho: Mikilvægt fyrir okkur að tapa þessum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2017 09:30 Neymar og Lionel Messi fagna sigurmarki þess fyrrnefnda í nótt. Vísir/Getty
Barcelona vann 1-0 sigur á Manchester United í Washington í nótt en þetta var síðasti leikur enska liðsins í alþjóðlega æfingamótinu International Champions Cup. Barcelona á eftir að mæta Real Madrid í Miami áður en liðið snýr aftur til Spánar til að ljúka undirbúningi sínum fyrir komandi keppnistímabil. Eina mark leiksins skoraði Brasilíumaðurinn Neymar á 31. mínútu leiksins. Neymar lék bara fyrri hálfleikinn en hann skoraði sigurmarkið eftir varnarmistök Antonio Valencia. Neymar hefur verið orðaður við franska liðið Paris Saint-Germain sem er tilbúið að borga Barcelona 222 milljónir evra fyrir hann eða upphæðina sem þarf til að kaupa upp samning Brasilíumannsins og Börsunga. Barcelona átti möguleika á því að skora mun fleiri mörk í fyrri hálfleiknum en David de Gea, markvörður Manchester United, varði margoft vel í markinu. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, talaði um það eftir leikinn að það hafi verið mikilvægt fyrir hans lið að tapa þessum leik. „Ég tel að það hefði verið mjög slæmt fyrir okkur að snúa taplausir heim frá Bandaríkjunum. Við erum búnir að mæta liðum eins og Real Madrid, Barcelona og Manchester City. Það hefði verið afar slæmt að koma heim með ekkert nema sigra,“ sagði Mourinho. Manchester United á eftir tvo leiki á undirbúningstímabilinu en liðið mætir norska liðinu Valerenga á sunnudaginn og spilar svo síðasta æfingaleikinn við Sampdoria í Dublin á Írlandi á miðvikudaginn kemur. Manchester United mætir síðan Evrópumeisturum Real Madrid í Súperbikar UEFA 8. ágúst en það er árlegur leikur milli liðanna sem vinna Meistaradeildina og Evrópudeildina.
Enski boltinn Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Enski boltinn Fleiri fréttir Wolves - Chelsea | Bítur botnliðið frá sér? Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sjá meira