O.J. Simpson fær reynslulausn Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. júlí 2017 19:20 O.J. Simpson var ánægður með úrskurð nefndarinnar en hann verður líklega látinn laus í október. Vísir/AFP
O.J. Simpson, sem dæmdur var í allt að 33 ára fangelsi árið 2008, hefur fengið reynslulausn. Úrskurður nefndar Nevada-ríkis um reynslulausnina var kveðinn upp í dag en gert er ráð fyrir að Simpson verði látinn laus í október næstkomandi. Simpson hefur afplánað 9 ár af 33 ára dómi sem hann hlaut árið 2008 fyrir mannrán, vopnað rán og líkamsárás. Brotin voru framin á hótelherbergi í Las Vegas í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Umsókn Simpson um reynslulausn vakti mikla athygli á dögunum en hann var kallaður fyrir reynslulausnarnefndina í dag. Í réttarsalnum baðst Simpson afsökunar á brotum sínum og sagðist vera fyrirmyndarfangi. Þá hét hann því að forðast átök, yrði honum slept lausum. Þegar nefndin samþykkti reynslulausn hans í Lovelock-fangelsinu í Nevada sagði Simpson, sem nú er sjötugur, einfaldlega: „Takk fyrir!“ Árið 1995 var Simpson sýknaður af ákæru fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni, Nicole Brown Simpson og vini hennar Ron Goldman. Réttarhöldin yfir Simpson á tíunda áratugnum eru ein þau frægustu í sögu Bandaríkjanna. Enn hefur enginn verið dæmdur fyrir morðin á Brow Simpson og Goldman. Téð réttarhöld eru gjarnan kölluð „réttarhöld aldarinnar“ í fjölmiðlum vestanhafs og vöktu þau aftur mikla athygli á síðasta ári þegar sjónvarpsþættirnir American Crime Story: The People v. O.J. Simpson og heimildarmyndin O.J: Made in America, komu út og hlutu fjölda verðlauna.
Tengdar fréttir O.J. Simpson sækir um reynslulausn Fjórir meðlimir í nefnd Nevada ríkis um reynslulausn munu á fimmtudaginn taka ákvörðun um hvort fangi númer 1027820 skuli hljóta reynslulausn. 18. júlí 2017 10:25 Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira
O.J. Simpson sækir um reynslulausn Fjórir meðlimir í nefnd Nevada ríkis um reynslulausn munu á fimmtudaginn taka ákvörðun um hvort fangi númer 1027820 skuli hljóta reynslulausn. 18. júlí 2017 10:25