Nemanja Matic síðasta púslið í meistaralið Manchester United? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2017 09:30 Nemanja Matic er strax farinn að skipa fyrir hjá United. Vísir/Getty
Manchester United keypti Nemanja Matic frá Englandsmeisturum Chelsea á dögunum og gamli markaskorinn Ian Wright er á því að þetta gætu verið sannkölluð meistarakaup. Ian Wright telur að Chelsea hafi með þessu mögulega afhent erkifjendunum í Manchester „síðasta púsluspilið“ en hinn 28 ára gamli Serbi skilar til síns liðs mikilvægari og vanmetinni vinnu inn á miðjunni. Chelsea vann enska titilinn á síðustu leiktíð og endaði með 24 fleiri stig en Manchester United. United hefur verið að styrkja sig í sumar en liðið komst í Meistaradeildina í gegnum Evrópudeildina. „Eins og staðan er núna þá er Chelsea verra sett í dag en á síðasta tímabili,“ sagði Ian Wright við BBC. Hann nefnir til að félagið sé að missa svokallaða áhrifaleikmenn. Chelsea er nefnilega búið að missa mikla reynslu úr sínu liði, seldi Matic til United, sagði að markaskorarinn Diego Costa mætti fara, bauð fyrirliðanum John Terry ekki nýjan samning og seldi síðan varamarkvörðinn Asmir Begovic til Bournemouth. „Þeir eru að losa sig við reynda leikmenn og eru þar að missa leikmenn sem þeir vita nákvæmlega hvað þeir munu fá frá,“ sagði Wright. „Þeir hafa fengið Bakayoko frá Mónakó til að taka við af Matic en hann þarf að koma sterkur inn frá fyrsta leik því Chelsea ætlar sér langt í Meistaradeildinni og svo að verja Englandsmeistaratitilinn,“ sagði Wright sem á sínum tíma vann titilinn með Arsenal. Auk Tiemoue Bakayoko þá fékk Cheslea framherjann Alvaro Morata frá Real Madrid, þýska varnarmanninn Antonio Rudiger frá Roma og Willy Caballero, fyrrum markvörð Manchester City.
Enski boltinn Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport „Spennið núna beltin áhorfendur góðir, þetta er svakalegt“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Sjá meira