Segja formann Varðar hafa brotið trúnað við afgreiðslu á leiðtogaprófkjöri Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. ágúst 2017 11:30 Grein Arndísar Kristjánsdóttur, Eiríks Ingvarssonar og Halldórs Inga Pálssonar, Fólkið í Sjálfstæðisflokknum hefur rétt á því að velja, birtist á Vísi í morgun. Vísir/Samsett mynd
Félagar í stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, gagnrýna stjórn fulltrúaráðsins fyrir afgreiðslu á tillögu um leiðtogaprófkjör og segja formanninn hafa brotið trúnað með háttsemi sinni í málinu. Kosið verður um breytingar á fyrirkomulagi prófkjörs Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 á fundi fulltrúaráðsins í Valhöll í dag.Arndís Kristjánsdóttir, Eiríkur Ingvarsson og Halldór Ingi Pálsson, félagar í stjórn Varðar, gagnrýna aðra stjórnarmenn í grein sem birtist á Vísi í dag.Vísir/AðsentArndís Kristjánsdóttir, Eiríkur Ingvarsson og Halldór Ingi Pálsson, félagar í stjórn Varðar, gagnrýna vinnubrögð annarra stjórnarmanna í grein sinni, Fólkið í Sjálfstæðisflokknum hefur rétt á því að velja, sem birtist á vef Vísis í morgun. Í greininni segir að stjórn Varðar hafi samþykkt á fundi 9. ágúst síðastliðinn að leggja tillögu um svokallað leiðtogaprófkjör fyrir fund fulltrúaráðsins sem haldinn verður í dag. „Ekki voru allir mættir á fundinn enda ekkert sem benti til þess á fundinum að stjórnin ætlaði að fjalla um val á lista í byrjun ágúst þegar rúmir 9 mánuðir eru til kosninga og margir enn í sumarfrí. Engin dagskrá var send stjórnarmönnum né voru þeir upplýstir á annan hátt að til stæði að fjalla um þessi mál,“ skrifa Arndís, Eiríkur og Halldór Ingi, sem öll eru félagar í stjórn Varðar. „Þrátt fyrir þessa augljósu annmarka á fundarsköpum ákvað formaður Varðar að afgreiða umræðu og atkvæðagreiðslu um leiðtogaprófkjör á einum og sama fundinum,“ skrifa þau enn fremur en Gísli Kr. Björnsson héraðsdómslögmaður er sitjandi formaður Varðar. Leiðtogaprófkjör svokallað gerir ráð fyrir að aðeins sé kosið um oddvitasæti lista í almennum kosningum. Nefnd sjái svo um að skipa í önnur sæti á listunum.Segja háttsemi formannsins trúnaðarbrot Í greininni segir enn fremur að til að gefa öllum stjórnarmönnum tækifæri til að kynna sér tillögu stjórnarinnar hafi verið ákveðið að funda um hana aftur stuttu síðar. Því hafi verið breytt með tölvupósti frá flutningsmönnum tillögunnar og stjórnarmenn „hvattir til að hafna því að annar stjórnarfundur yrði haldinn.“ Formaður Varðar, sem eins og áður sagði er Gísli Kr. Björnsson héraðsdómslögmaður, er í framhaldi tekinn fyrir en höfundar greinarinnar gagnrýna viðbrögð hans við efasemdum félagsmanna um leiðtogaprófkjörið. Þá segja þau háttsemi hans trúnaðarbrot við stjórnarmenn. „Viðbrögð formanns Varðar voru þau að ráðast gegn þessum aðilum með því að skella fram á opinberum vettvangi fullyrðingum þar sem rekja mátti hvernig einstaka stjórnarmenn hefðu hagað málflutningi og atkvæðagreiðslu á umræddum stjórnarfundi Varðar. Háttsemi formanns Varðar var augljóst brot á trúnaði við þá stjórnarmenn fyrir utan að formaðurinn fór ekki með rétt mál í öllum tilvikum,“ rita Arndís, Eiríkur og Halldór Ingi. Þá segja þau ljóst að meiri tíma þurfi ef leggja á fram tillögu með svo umfangsmiklum breytingum á kosningafyrirkomulagi. „Tillögunni fylgja margir óvissuþættir, eins og hún er lögð fram í dag, og því nauðsynlegt að skoða hana betur áður en endanleg ákvörðun er tekin í þessu mikilvæga máli. Það er sorglegt að verða vitni að þeim vinnubrögðum hluta stjórnar fulltrúaráðsins í Reykjavík sem hafa stuðlað að tortryggni og óþarfa átökum í aðdraganda prófkjörs sjálfstæðsmanna.Árni Árnason, stjórnarmaður í Verði, skrifaði grein til stuðnings leiðtogaprófkjörinu í ágúst.Leiðtogaprófkjör til þess að gert að tryggja hlut kvenna Árni Árnason, stjórnarmaður í Verði, skrifaði grein um leiðtogaprófkjörs-tillögu Varðar þann 18. ágúst síðastliðinn. Þar segir hann leiðtogakjörið, eða „blandaða leið,“ hafa það að meginmarkmiði að „tryggja hlut kvenna á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík.“ „Ég hvet þá sem vilja veg kvenna sem mestan á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar til að styðja blönduðu leiðina. Sú leið snýst einmitt um það að leiðtoginn er kjörinn í opnu prófkjöri þar sem allir flokksbundnir sjálfstæðismenn hafa þátttökurétt. Að því loknu mun uppstillingarnefnd, sem einnig er kjörin af hátt í 2000 fulltrúaráðsmeðlimum í Reykjavík, raða upp á listann frambærilegum konum og körlum,“ skrifaði Árni og nefndi þar sér til stuðnings niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kraganum fyrir síðustu alþingiskosningar. Þar röðuðu fjórir karlmenn sér í efstu sæti listans en engin kona. Kosið verður um tilllöguna á fundi Varðar í Valhöll í dag. Þar mun því ráðast hvort Sjálfstæðisflokkurinn haldi hefðbundið prófkjör í komandi sveitarstjórnarkosningum eða umrætt leiðtogaprófkjör og feli þannig nefnd að skipa í önnur sæti á lista.
Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Fleiri fréttir Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Sjá meira