Linda Pé í fullu námi með vinnu og 230 þúsund fylgjendur Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. september 2017 06:15
Hvernig er daglegt líf fegurðardrottningar og hvað er eiginlega í heimsfræga heilsudrykknum hennar? Því fékk Vala Matt að kynnast á dögunum þegar hún heimsótti Lindu Péturdóttur á heimili hennar og dótturinnar Ísabellu. Þar leiddi Linda sjónvarpsvélar Ísland í dag í gegnum hina ýmsu kima heimilis hennar. Farið var í gegnum fataskápinn þar sem finna má fjölbreytt úrval; allt frá hversdagslegum peysum og leggings til kimono-kjóla fyrir öll tækifæri. Þá voru galakjólarnir ekki langt undan en Linda segir að þessir gylltu „og smá sexy“ séu í miklu uppáhaldi. Hún segist alla jafna mála sig lítið en getur þó aldrei verið án augnhárabrettarans og augnblýantsins. Þá eru síminn, veskið og handáburður aldrei langt undan. Með á þriðja hundrað þúsund fylgjendur Þá leiddi hún Völu og áhorfendur í allan sannleikann um hinn víðfræga græna heilsudrykk sem hún mallar á hverjum degi. Agúrkur, sítrónur og lárperur koma meðal annars við sögu. Þessa dagana er Linda að vinna að háskólagráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði sem hún segir vera eins og fulla vinnu. Meðfram náminu vinnur hún einnig að heimasíðunni sinni, lindap.is, sem þúsundir heimsækja í hverjum mánuði. Hún er til að mynda með meira en 230 þúsund fylgjendur, hvaðanæva að, á samfélagsmiðlum. Þá skrifar hún jafnframt í dagbók á hverjum morgni og gefur sér nokkrar mínútur til að hugleiða. Innlitið til Lindu P. má sjá í spilaranum hér að ofan.
Vala Matt Ísland í dag Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira