Hversu fljótir verða þeir að taka þetta niður á Stamford Bridge? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2017 13:30 Antonio Conte og Dirego Costa. Vísir/Getty
Fjölmiðlamaðurinn Oliver Harbord sem skrifar um Chelsea-liðið fyrir fótboltasíðuna Football.London tók eftir einu þegar hann mætti á blaðamannafund með knattspyrnustjóranum Antonio Conte í dag. Risastór mynd af Diego Costa með Englandsbikarinn frá því síðasta vor blasti við Harbord sem og öðrum fjölmiðlamönnum þegar hann mætti á Brúna. Diego Costa hefur hvorki æft nér spilað með liði Chelsea frá lok síðustu leiktíð þrátt fyrir að hafa skoraði 20 mörk og lagt upp önnur átta til viðbótar á meistaratímabili Chelsea 2016-17. Liðið fékk 2,4 stig að meðaltali í þeim 35 leikjum sem hann spilaði í ensku úrvalsdeildinni í fyrravetur. Það breytti því þó ekki að knattspyrnustjórinn Antonio Conte vildi ekki sjá hann lengur.At Stamford Bridge for Conte's press conference. Feel like this poster might be coming down at some point soon #cfcpic.twitter.com/RiWdMcNxlS — Oliver Harbord (@ojharbord) September 22, 2017 Chelsea er nú búið að selja framherjann aftur til Atletico Madrid. Hann varð tvisvar meistari með Chelsea og skoraði alls 52 mörk í 89 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Antonio Conte þurfti að sjálfsögðu að svara spurningum um Diego Costa á blaðamannafundinum. „Við viljum þakka honum fyrir það sem hann gerði fyrir þennan klúbb. Við óskum honum alls hins besta,“ sagði Antonio Conte en hvað með samband hans og Costa? „Það skiptir ekki máli. Ég hef ekki áhuga á því að halda áfram að tala um þetta mál. Ég er að vinna með mínum leikmönnum og er ánægður að vinna með þeim. Það er það sem skiptir máli,“ sagði Conte. En hefur Diego Costa eyðilagt stöðu sína í sögu Chelsea? „Ég hef ekki áhuga á að tala um fortíðina því hún skiptir ekki máli. Við unnum saman á síðasta tímabili og ég vil aftur þakka honum fyrir framlag hans á síðasta tímabili og þann tíma sem hann spilaði með Chelsea,“ sagði Conte. Síðasta mark Diego Costa fyrir Chelsea kom í 3-0 sigri á Middlesbrough 6. maí 2017 en liðið svo gott sem tryggði sér endanlega titilinn í þeim leik. Diego Costa hefur skorað yfir tuttugu deildarmörk á þremur af síðustu fjórum tímabilum sínum í boltanum og í öll þrjú skipti hafa lið hans orðið meistari. (Atlético Madrid 2014 og Chelsea bæði 2015 og 2017). Myndin verður samt fljót að fara niður ef Oliver Harbord hefur rétt fyrir sér.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira