Púðurskotavika hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2017 09:45 Dominic Solanke fór illa með færin í gær. Vísir/AFP
Liverpool féll í gær úr enska deildabikarnum eftir 2-0 tap á móti Leicester City. Það vantaði þó ekki lofandi sóknir og færi hjá Liverpool-mönnum eins og í leikjunum á undan. Leikurinn var enn eitt dæmið um stífan sóknarleik Liverpool-liðsins sem er ekki að skila miklu og á móti þurfa andstæðingarnir ekki mikið til að koma boltanum í netið hinum megin á vellinum. Liverpool hefur þannig reynt 80 skot í þremur leikjum á innan við viku og aðeins þrjú þeirra hafa endað í markinu. Það gerir aðeins tæplega fjögur prósent skotnýtingu. Skysports fjallar um þetta. Alex Oxlade-Chamberlain, Philippe Coutinho, Andrew Robertson og Dominic Solanke fengu allir færi í fyrri hálfleiknum á móti Leicester í gær en engum þeirra tókst að skora. Fyrir vikið þökkuðu Leicester-menn fyrir sig í seinni hálfleiknum, skoruðu tvö mörk og tryggðu sér sæti í næstu umferð keppninnar. Stórsigur Liverpool á Arsenal er löngu gleymdur. Liðið var skotið niður á jörðina í stóru tapi á móti Manchester City í næsta leik og náði síðan ekki að vinna neinn af þessum þremur leikjum sínum á þessari viku. Roberto Firmino skaut í stöngina úr víti á móti Sevilla og bæði Sadio Mane og Mo Salah fóru illa með færi í seinni hálfleik í 2-2 jafntefli. Daniel Sturridge og Dominic Solanke fóru illa með mjög góð færi í 1-1 jafntefli á móti Burnley. Í leiknum í gær þar sem Dominic Solanke fékk þrjú mjög góð færi þá átti Liverpool þrettán skot í fyrri hálfleik og átta til viðbótar í þeim seinni. Aðeins þrjú þeirra enduðu þó á markinu og ekkert þeirra fór inn. Það eru ekki góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Liverpool að framherjar þeirra séu farnir að skjóta púðurskotum því ekki er vörnin sú traustasta í boltanum. Haldi þetta áfram verður erfitt fyrir Liverpool-liðið að landa sigrum.Skot Liverpool í síðustu þremur leikjum: 24 skot á móti Sevilla í 2-2 jafntefli 35 skot á móti Burnley í 1-1 jafntefli 21 skot á móti Leicester í 2-0 tapi
Enski boltinn Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira