Fjórði kosningaþáttur Stöðvar 2 fyrir komandi þingkosningar fer í loftið klukkan 19:10 í kvöld en þættirnir eru á dagskrá strax að loknum fréttum þriðjudaga og fimmtudaga fram að kosningum.
Þeir verða í opinni dagskrá og í beinni útsendingu bæði á Stöð 2 og hér á Vísi. Einn þáttur verður fyrir hvert kjördæmi en Reykjavíkurkjördæmin verða tekin saman.
Í kvöld er fókusinn á Suðvesturkjördæmi og munu fulltrúar allra þeirra flokka sem eru á þingi í dag ásamt þeim flokkum sem mælst hafa yfir fimm prósentum í könnunum mæta í þáttinn.
Stjórnandi þáttarins er Höskuldur Kári Schram.
Innlent