2017 stefnir í að verða næsthlýjasta árið frá upphafi mælinga Kjartan Kjartansson skrifar 19. október 2017 14:47 Kortið sýnir hitafrávik í september miðað við meðaltal 20. aldar. NOAA
Meðalhiti jarðar í september var sá fjórði hæsti frá því að mælingar hófust á 19. öld. Samkvæmt nýjustu tölum Haf- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna (NOAA) stefnir í að árið ár verði það næsthlýjasta í sögu beinna mælinga. Tölur NOAA eru í samræmi við þær sem bandaríska geimvísindastofnunin NASA birti fyrr í vikunni að þessu leyti. Samkvæmt NOAA var september í ár aðeins á eftir sama mánuði árin 2015, 2016 og 2014. Tíu hlýjustu septembermánuðir í sögu mælinga NOAA hafa allir verið eftir síðustu aldamót. Áður hafði Goddard-geimrannsóknastöð NASA (GISS) greint frá því að meðalhiti yfirborðs jarðar var 0,80°C yfir miðgildi hita í septembermánuði frá 1951 til 1980. Lágmarksútbreiðsla hafíssins á norðurskautinu eftir sumarið var sú áttunda minnsta frá því að gervihnattamælingar hófust við lok 8. áratugs síðustu aldar, að sögn NOAA. Á suðurskautinu var útbreiðsla hafíssins sú önnur minnsta í september frá upphafi mælinga. Hitamælingar NOAA og GISS ná aftur til um það bil ársins 1880.
Loftslagsmál Vísindi Mest lesið Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Fleiri fréttir Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Sjá meira