Lífið

Uppbygging og niðurrif mætast á einum reit

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Brátt mun stórhýsið að Lækjargötu 12 verða rifið, en þess verður minnst af mörgum.
Brátt mun stórhýsið að Lækjargötu 12 verða rifið, en þess verður minnst af mörgum.
„Þetta er bygging sem hefur sótt á okkur og kallar á athygli – einstök bygging. Síðastliðin ár hafa líka verið í deiglunni ákveðnar breytingar á þessum reit,“ segir Anna María Bogadóttir arkitekt aðspurð hvernig það komi til að akkúrat þessi bygging hafi orðið fyrir valinu – en hún, Berglind María Tómasdóttir tónskáld og Kristín Gunnarsdóttir myndlistarmaður standa fyrir jarðsöng Lækjargötu 12, en senn mun sú bygging víkja úr borgarlandslaginu.

Lækjargata 12, stórhýsi Iðnaðarbankans, reis á árunum 1959 til 1963. Lögð var mikil alúð í handverk og við efnisval í bygginguna og var ekkert til sparað. Anna María segir að athöfnin sé að einhverju leyti ætluð til að heiðra þá alúð, iðnaðarmennina og hugmyndirnar sem komu við sögu í þessari byggingu.

„Það sem vakir fyrir okkur er að varpa ljósi á bygginguna og það sem byggingin varpar ljósi á sjálf. Þessi staka bygging rís þarna á sjöunda áratugnum upp úr frekar lágreistri miðborg og endurspeglar bæði framtíðardrauma sem og alþjóðlega strauma. Nú rétt um fimmtíu árum síðar er búið að taka þá ákvörðun að rífa hana, þannig að hún staldrar stutt við, svona miðað við hvað var lagt upp með og sem bygging almennt.

Við viljum varpa ljósi á þessi mörgu sjónarhorn sem hver bygging býður upp á, byggingarlist, borg, samfélag, hagkerfi o.s.frv. Bæði varpar þessi bygging ljósi á þá tíma sem hún var byggð á; sjöundi áratugurinn var þessi mikli uppbyggingartími – byggingin var vígð sama ár og nýtt Aðalskipulag Reykjavíkur var samþykkt þar sem uppi voru mjög stórtækar áætlanir um miklar breytingar á borginni, ekki síst miðborginni.

Síðan er það líka hugmyndin um að að baki hverri byggingu eru draumar og hugmyndir sem spretta úr samfélaginu og tíðaranda sérhvers tíma. Það sem mætist núna er niðurrif og uppbygging – því að það sem er að baki niðurrifi eru líka draumar og hugmyndir. Við erum að einhverju leyti að velta upp spurningum um hvaða draumar og ástríða liggja að baki niðurrifinu í dag.“

Hvernig mun athöfnin fara fram?

„Við ætlum að leyfa byggingunni að ljóma innan frá og út, frá klukkan sex að miðnætti. Það er einmitt svolítið kjarni verksins að líta inn á við – bæði byggingin og borgin og við sem einstaklingar. Við hefjum þetta jafnframt á tónlistarviðburði eða jarðsöng. Hópur tónlistarmanna mun hlusta á bygginguna og spila með henni. Þannig að við erum líka að hlusta á hvað þessi bygging hefur að segja okkur og leyfa henni að ljóma í hinsta sinn.“


Tengdar fréttir

Borgaryfirvöld heimila að stórt hótel rísi í Kvosinni

Umtalsvert niðurrif og tvöföldun á byggingarmagni er meðal breytinga á deiliskipulagi Kvosarinnar sem borgarráð samþykkti á fundi sínum fyrir helgi. Er gert ráð fyrir byggingu rúmlega 7.300 fermetra hótels og bankaútibús í nýbyggingu á sameinaðri lóð Lækjargötu 12 og Vonarstrætis 4 og 4b.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.