Innanríkisráðherra segir af sér vegna skógarelda Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 19. október 2017 06:00 Skógareldarnir ollu miklu tjóni í Portúgal. vísir/afp
Constanca Urbano de Sousa, innanríkisráðherra Portúgal, sagði í gær af sér vegna skógarelda sem kostuðu að minnsta kosti 41 mann lífið í ríkinu á dögunum. Slökkviliðsstarf og almannavarnir eru á meðal verkefna portúgalska innanríkisráðuneytisins og hafa viðbrögð innanríkisráðuneytisins við hamförunum sætt mikilli gagnrýni.Constanca Urbano de Sousa, innanríkisráðherra Portúgal.vísir/afpÁður hafði afsagnar hennar verið krafist vegna skógarelda sem kostuðu sextíu lífið í júní síðastliðnum. Í afsagnarbréfi ráðherrans kemur fram að hún hafi boðist til þess að segja af sér á þeim tíma en forsætisráðherra hafi neitað. Nú væru hins vegar engar „pólitískar eða persónulegar forsendur“ til þess að halda áfram í starfi. António Costa forsætisráðherra tilkynnti í gær að hann hefði meðtekið og samþykkt afsagnarbréf de Sousa. Áður hafði hann sagt að ekki kæmi til greina að stokka upp í ríkisstjórninni vegna skógareldanna. Stjórnarandstöðuflokkurinn Fólksflokkurinn hefur lagt fram vantrauststillögu á alla ríkisstjórn Portúgal vegna viðbragða við skógareldunum og forseti landsins hefur kallað þingið saman til þess að ræða hvort ríkisstjórnin ætti að halda áfram störfum. Sjálfum finnst forsetanum, Marcelo Rebelo de Sousa, að ríkisstjórnin hafi umboð frá þjóðinni til að tryggja sterkara slökkviliðsstarf og umbætur í forvörnum til þess að koma í veg fyrir frekari hamfarir.
Birtist í Fréttablaðinu Portúgal Skógareldar í Portúgal Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira