PJ Karsjó verður frumsýndur í bílabíói við Perluna Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. október 2017 14:30 Pétur Jóhann Sigfússon fer af stað með þáttinn PJ Karsjó á Stöð 2 á fimmtudag klukkan 20:55. Pétur
Jóhann Sigfússon fer af stað með þáttinn PJ Karsjó á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Fyrsti þátturinn af þessum glænýja bílaþætti verður frumsýndur í bílabíói við Perluna í Reykjavík í kvöld klukkan 20. Boðsgestir munu leggja fyrir framan Perluna í þessu skemmtilega bílabíói. „Við erum með tvo mjög öfluga myndvarpa sem við setjum fyrir utan Perluna og vörpum svo risastórri mynd á tvo tanka,“ segir Jóhann Örn Ólafsson sem sér um að skipuleggja þennan skemmtilega viðburð. Fyrsti þáttur PJ Karsjó verður sýndur utan á tveimur tönkum Perlunnar og gestirnir í bílabíóinu hlusta á hljóðið í gegnum ákveðna tíðni á útvarpinu í bílnum sínum en það er líka hljóðkerfi á staðnum svo þeir sem eru úti geti líka hlustað. Enn er möguleiki á reyna að vinna boðsmiða fyrir bíla en miðaverðir verða á staðnum og nauðsynlegt að mæta með miða til þess að leggja bílnum á stæðið í bíóinu. Allir sem vilja mega þó auðvitað mæta fótgangandi og sitja í grasinu. Útvarpsstöðvar 365 gefa miða til klukkan 16 í dag og svo er einnig hægt að reyna að ná sér í miða á Facebook-síðu Stöðvar 2. „Við vildum gera eitthvað öðruvísi fyrir þessa sérstöku þætti. Ég rúntaði svo um bæinn til þess að finna stað þar sem hægt væri að setja upp bílabíó án þess að vera með eitthvað risastórt tjald í rokinu. Perlann er mjög flottur staður fyrir þetta og lítil ljósmengun þar sem við slökkvum á einhverjum ljósastaurum á svæðinu,“ útskýrir Jóhann.PJ Karsjó er alls ekki týpískur bílaumfjöllunarþáttur og gestirnir verða jafn ólíkir og þeir eru margir. Þættirnir verða níu samtals. „Þetta er án efa það skemmtilegasta sem ég hef gert, með fullri virðingu fyrir öllu öðru. Ég hef bara svo óendanlega gaman af öllum farartækjum. Hvort sem það er þyrla, bátur, skip eða bíll,“ sagði Pétur Jóhann um PJ Karsjó í viðtali hér á Lífinu. „Við stefnum á það að búa til eins mikla skemmtun og við getum. Í grunninn er þetta kannski um farartæki en við erum ekkert bara að prófa flotta bíla, þó það sé eitthvað svoleiðis.“ Fyrsti þátturinn af PJ Karsjó verður sýndur á fimmtudagskvöld klukkan 20:55 á Stöð 2.
PJ Karsjó Tengdar fréttir Pétur hætti lífi sínu í nýja þættinum: Sprengdi, sökkti og kramdi bíla Pétur Jóhann Sigfússon fer af stað með glænýjan þátt á Stöð 2 í oktíober sem ber nafnið PJ Karsjó. Um er að ræða skemmtiþátt um farartæki. 25. september 2017 10:30 Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira
Pétur hætti lífi sínu í nýja þættinum: Sprengdi, sökkti og kramdi bíla Pétur Jóhann Sigfússon fer af stað með glænýjan þátt á Stöð 2 í oktíober sem ber nafnið PJ Karsjó. Um er að ræða skemmtiþátt um farartæki. 25. september 2017 10:30