Væri til í að gera þætti eða bíómynd byggða á hugmyndinni: „Eitthvað svo fallegt við þessar persónur“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 29. október 2017 15:30 Árni Þór Jónsson leikstjóri við tökur á nýju herferðinni. Aðsent
Árni Þór Jónsson leikstýrir framhaldinu af Sorpanos auglýsingaherferð Sorpu sem fer í frumsýnd verður í næstu viku. Það var Brandenburg auglýsingastofan sem kom upprunalega með hugmyndina að þessari auglýsingaherferð en Árna dreymir um að gera þessa hugmynd að þáttaröð eða bíómynd. „Hrafn og Gulli hjá Brandenburg og ég unnum síðan saman að útfærslu, skutum síðan á milli okkar hugmyndum og á endanum unnum saman að endanlegum handritum. Þessi nýja herferð er í raun áframhald af herferð sem við gerðum fyrir tveimur árum sem þótti vel heppnuð. Í þessari nýju herferð bættum við við persónum en héldum í svipað yfirbragð. Al-íslenskt en með alskyns vísanir í klisjur og steríótýpur úr bíómyndum og raunveruleikanum.“AðsentÍ aðalhlutverkum í Sorpanos herferðinni eru þeir Helgi Björnsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson en Árni segir að það hafi verið skemmtilegt að leikstýra þeim félögum. „Báðir eru náttúrulega reyndir leikarar og miklir karakterar. Helgi er mikill fagmaður sem þarf svo sem ekki mikið að leikstýra. Björn, sem er einnig mikill fagmaður og afar vanmetinn leikari, kom með ákveðna kómík inn í þetta fyrir okkur með sýnum karakter og steríótýpunni - og var í raun alltaf í okkar huga fyrir þetta hlutverk. Ákveðin „homage“ á eina skemmtilegustu íslensku bíómynd sem gerð hefur verið, Sódóma Reykjavík, þar sem þeir fóru báðir á kostum.“Eva Ruza kemur fram í nýju auglýsingaherferðinniAðsentÁrni býr í Los Angeles og kann vel við sig. „Þó ég búi í LA þá taka verkefnin mig út um allan heim. Nýlega kláraði auglýsingu fyrir Mastercard sem unnið var í Suður Afríku og herferð fyrir fjárfestingafyrirtæki í Bandaríkjunum sem var skotin öll í LA og nágrenni hennar.“ Hann segir að það sé þónokkur munur á því að taka að sér verkefni á Íslandi og erlendis. „Meiri peningar erlendis að framkvæma verkefnin, þó svo að það fari mjög eftir hvernig verkefnin eru, og hinsvegar frelsi. Á Íslandi er umtalsvert meira frelsi í öllum aðgerðum fyrir auglýsingaleikstjóra.“ Árni segir að fyrstu sjónvarpsauglýsingarnar sem hann gerði hafi verið þau eftirminnilegustu. Nefndi hann þá sérstaklega herferðir fyrir Egils Orku með Friðrik 2000 og Rautt sem voru afar eftirminnilegar fyrir þær sakir að frelsið í allri hugmynda- og handritagerð var nánast algjört. „Skemmtilegustu verkefnin eru yfirleitt þau sem hafa verið unnin af alúð, ástríðu og greind af hönd auglýsingastofunnar - þegar þetta kemur í hendurnar á mér eru verkefnin yfirleitt gróflega unnin, en í sumum tilvikum eru þau mjög vel ígrunduð og nákvæm. Skemmtilegustu verkefnin fyrir mér eru ávallt þau þegar sagan er sterk og skilaboðin hárbeitt og skýr. Skemmir ekki þegar maður fær tækifæri að taka að sér eitthvað sem stendur manni nærri - eins og að segja sögu íslenskrar knattspyrnu fyrir Icelandair í fyrra eða skapa sérstæða karaktera byggða á þekktri sjónvarpsseríu eins og í Sorpanos. Öll verkefni eru að vissu leyti skemmtileg, bara mismunandi mikið skemmtileg.“Á bakvið tjöldin. Árni er einn eiganda Republik, framleiðslufyrirtækis herferðanna.AðsentÁrna langar að gera heila sjónvarpsþáttaröð eða bíómynd byggða á Sorpanos auglýsingahugmyndinni og myndi jafnvel nota sömu aðalleikara. Hann segir að þetta gæti verið hressandi sjónvarpsefni og fólk virðist hafa gaman af þessum auglýsingum. „Það er eitthvað svo fallegt við þessar persónur, að þeir virðast vera mjög glæpsamlegir og vafasamir en eru í raun bara þessir einföldu, jafnvel misheppnuðu týpur. Auk þess finnst mér kannski vanta í sjónvarp heima á Íslandi virkilega raunsæja leikna þætti, og er ég ekkert að dissa núverandi þáttagerð heima. Það eru frábærir þættir í gangi um sakamál og annað, en ef á botninn er hvolft þá eru í raunveruleikanum einungis framin, sem betur fer, eitt morð á tveggja ára fresti á Íslandi. Íslenskur raunveruleiki er dálítið annað. Gaman væri að auka í fjölbreytileika sjónvarps- eða bíóefnis á Íslandi. Myndi samt endurskoða vísanir í Sopranos og leita eftir að búa til þættina byggða á karakterunum sem við höfum gert en auka dýpt þeirra og aðstæður.“
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira