Formaðurinn rak Arnar án stuðnings stjórnarinnar Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. október 2017 18:17 Arnar Gunnarsson kom Fjölni upp í Olís-deildina. vísir/ernir
Eins og kom fram fyrr í dag er Arnar Gunnarsson ekki lengur þjálfari Fjölnis í Olís-deild karla í handbolta en Aðalsteinn Snorrason, formaður handknattleiksdeildar félagsins, sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem tilkynnt var að Arnar væri hættur störfum. Arnar hætti ekki heldur var hann rekinn af Aðalsteini sem tók þá ákvörðun nánast einn síns liðs og án þess að boða stjórnafund. Þetta segir Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, stjórnarmaður og meðlimur í meistaraflokksráði Fjölnis, á Facebook-síðu sinni. „Hið rétta er að formaður deildarinnar hefur rekið hann frá deildinni. Sem stjórnarmaður og meðlimur í meistaraflokksráði tilkynni ég að ekki hefur verið boðað til neins fundar né þessi ákvörðun rædd af stjórn deildarinnar né meistaraflokksráði,“ segir hún. „Hér er um að ræða ákvörðun eins manns sem hefur einn eða tvo stjórnarmenn að baki sér en ekki ákvörðun meirihluta stjórnar deildarinnar. Ég lýsi því hér með yfir að þarna tel ég formann deildarinnar hafa farið út fyrir sínar heimildir sem formaður.“ Jarþrúður segir að ekki sé búið að ganga frá formlegri uppsögn þjálfarans þó svo búið sé að tilkynna fjölmiðlum um uppsögn hans en þetta finnst henni ekki góð vinnubrögð. „Þetta eru vinnubrögð sem mér finnst engan vegin eiga heima hvort heldur sem er í íþróttastarfi né á almennum vinnumarkaði,“ segir hún.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Arnar hættur með Fjölni Arnar Gunnarsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Fjölnis í handbolta. 25. október 2017 15:07 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira
Arnar hættur með Fjölni Arnar Gunnarsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Fjölnis í handbolta. 25. október 2017 15:07