Yngsta konan í ráðherrasætinu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 20. október 2017 06:00 Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Jacinda Ardern, formaður Verkamannaflokksins á Nýja-Sjálandi, verður yngsti kvenkyns forsætisráðherrann í sögu ríkisins. Þetta varð ljóst eftir að Winston Peters, formaður flokksins Nýja-Sjáland fyrst, tilkynnti að flokkur hans hefði ákveðið að ganga í ríkisstjórnarsamstarf með Verkamannaflokknum. Flokkur Ardern fékk næstflest sæti á nýsjálenska þinginu í þingkosningum sem fóru fram þann 23. september síðastliðinn. Það dugði ekki til að fá meirihluta þingsæta en með stuðningi Nýja-Sjálands fyrst og Græningja mun Ardern nú mynda ríkisstjórn og setjast í forsætisráðherrasætið með níu þingsæta meirihluta. BBC greinir frá því að það hafi einna helst verið persónufylgi Ardern sem tryggði Verkamannaflokknum góðan kosningasigur. Flokkurinn bætti við sig fjórtán þingsætum á meðan Þjóðflokkurinn, sem fékk þó flest þingsæti, tapaði þremur. Mikil stuðningsbylgja við Verkamannaflokkinn, sem fékk heitið „Jacinda-æði“, skilaði flokknum talsverðu fylgi þótt stuðningur hafi minnkað nokkuð dagana fyrir kosningar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira