Svana Lovísa sem heldur úti blogginu vinsæla Svart á Hvítu á Trendnet.is sér um hönnunarkafla Glamour og gefur hér góð ráð um hvernig má með einföldum hætti flikka upp á og stækka smærri rými.

Notaðu spegla til að láta rýmið virka stærra. Best er ef þú getur staðsett spegilinn á móti glugga, hann mun endurspegla útsýnið út um gluggann sem gefur þá tilfinningu að gluggarnir séu fleiri og rýmið stækkar.

Hvert húsgagn þarf að vera vandlega valið og þjóna sínum tilgangi. Hugsaðu um skemla sem nýtast einnig sem sófaborð eða sem aukasæti, lítil hliðarborð sem hægt er að færa auðveldlega á milli herbergja og kolla sem nýtast bæði sem sæti, hliðarborð eða jafnvel plöntustandur.

Húsgögn sem nýtast einnig sem geymslurými eru frábær til að takmarka drasl. Fallegur kistill, skemill eða körfur með loki sem nýtast sem stofuborð eru góð hugmynd.

Ef litla stofan þín er með ágæta lofthæð er um að gera að nýta það. Hengdu upp listaverk og myndir hærra en venjan er og búðu til skemmtilegan myndavegg sem gefur þá tilfinningu að rýmið sé ennþá stærra en það væri ef myndirnar væru í augnhæð.

Það getur reynst vel í litlum íbúðum að skipta út þungum og miklum húsgögnum fyrir önnur sem eru stílhreinni og minni um sig, það mun létta yfir öllu rýminu.
6. Bættu við plöntum
Eins og með speglana, þá gefa plöntur rýminu dýpt, sem er nauðsynlegt í minni rýmum. Ein planta sem stendur í horni getur strax gert mikið gagn.

Gott er að huga vel að lýsingu sem er mikilvæg fyrir lítil rými sem virka enn minni í lélegu ljósi. Gott ráð er að notast við nokkra ólíka ljósgjafa með mildri birtu.

Litir hafa áhrif á tilfinningu okkar fyrir stærð rýmis. Ekki hafa áhyggjur ef þú ert lítið hrifin/n af hvítum veggjum, ljósgráir mattir litir virka einnig vel og gera rýmið opnara og bjartara.

Geymslubox sem falin eru undir rúmi er góð lausn undir þá hluti sem eru í lítilli notkun. Fást til dæmis í Ikea.