Tíska og hönnun

Steldu stíl Dakotu Johnson

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan og fyrirsætan Dakota Johnson er hvað þekktust fyrir að leika Anastasiu Steele í kvikmyndunum Fifty Shades of Grey og Fifty Shades Darker, sem unnar eru uppúr samnefndum skáldsögum.

Hún lauk nýverið við tökur á þriðju myndinni í seríunni, Fifty Shades Free, sem kemur í kvikmyndahús í febrúar á næsta ári, en nú ætlum við að einbeita okkur að fatastíl leikkonunnar.

Fín í flauel

Byrjum á kjólnum. Um er að ræða síðan, svartan flaueliskjól, en flauel er vinsælt efni um þessar mundir.

Hægt er að fá svipaðan kjól og Dakota klæðist í Zöru. Sniðið er fallegt og klæðilegt og passar kjóllinn bæði hversdags og þegar á að gera sér glaðan dag.

Flottur jakki

Hægt er að fá þennan brúna gervifeld í H&M en hann er ansi svipaður jakkanum sem Dakota klæðist á myndinni hér fyrir ofan.

Svo er ekki verra að jakkinn er hlýr, enda farið að kólna vel hér á landi.

Skórnir skapa konuna

Dakota velur þunga skó við vetrarfatnaðinn sinn, sem er alls ekki svo galið. 

Hjá Skór.is er hægt að fá keimlíka skó, en undirritaðri finnst þeir bæði töffaralegir og flottir - sérstaklega paraðir við gervifeld og flauelskjól.





Fer ei langt án fylgihluta

Dakota fullkomnar svo lúkkið með doppóttum sokkabuxum, dökkum sólgleraugum og fallegum hringum á fingrum.

Hægt er að fá svipaðar nælon sokkabuxur í H&M en hringana fundum við á vefsíðunni velvet.is.

Sólgleraugun fást síðan hjá Suitup Reykjavík.

Hér fyrir neðan má sjá fyrstu stikluna úr myndinni Fifty Shades Free.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.