Conor vill eignast hlut í UFC Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2017 09:30 Það var létt yfir Conor á frumsýningunni í gær. vísir/getty
Það verður ekki auðvelt fyrir UFC að fá Conor McGregor aftur í búrið því hann er kominn á þann stað á sínum ferli að hann þarf að fá vel greitt til þess að berjast. Conor hefur áður talað um að vilja eignast hlut í UFC og fá að koma að skipulagningu viðburða. Hann hefur þegar stofnað McGregor Promotions og vill að það fyrirtæki taki þátt í vinnu með UFC. McGregor Promotions tók þátt í að auglýsa bardaga Conors og Floyd Mayweather. „Við erum að semja. Þeir þurfa að heilla mig því ég var að koma úr milljarðabardaga. Ég vil fá greitt og ég vil fá að vera með puttana í hlutunum. Ég vil eiga í UFC og fá að skipuleggja viðburði. Það þarf svona hluti til að fá mig aftur í búrið þar sem ég vil líka vera,“ sagði Conor áður en heimildarmynd um hann var frumsýnd í Dublin í gær. Degi áður sagðist hann vilja berjast næst við Tony Ferguson um beltið sitt í UFC. Hann dró aðeins í land með það í gær. „Það eru tveir gaurar sem koma til greina í tveimur íþróttum. Ég er líka með bolta á lofti í boxinu,“ sagði Conor en hann talaði einnig um að hann myndi vinna Floyd Mayweather í hringnum ef hann fengi annað tækifæri til þess.
MMA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Sjá meira