Ákall Piers Morgan til Harry Kane: Komdu aftur heim Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2017 22:15 Harry Kane. Vísir/Getty
Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan er einn þekktasti stuðningsmaður Arsenal og fer ekkert í felur með það. Hann hefur líka sterkar skoðanir á liðinu og er óhræddur að láta hluti flakka á samfélagsmiðlum ef hann er ekki sáttur við spilamennsku eða gengi liðsins. Framundan er nágrannaslagur Arsenal og Tottenham um næstu helgi og að því tilefni var Piers Morgan gestur í upphitunarþætti Sky Sports fyrir leikinn. Þátturinn verður sýndur fyrir leikinn en viðtalið var tekið upp á dögunum. Sky Sports hitaði upp fyrir þáttinn með því að birta brot úr viðtalinu við Piers Morgan en hann var þar að nota tækifærið og biðla til Harry Kane að koma til Arsenal. Það kom nefnilega í ljós að Harry Kane eyddi einu ári í knattspyrnuakademíu Arsenal þegar hann var strákur. „Harry Kane er frábær. Ég tel að hann sé heimsklassa leikmaður,“ sagði Piers Morgan en það má nálgast myndbrotið hér. „Sem betur fer er hann svo góður að Real Madrid eða Barcelona munu kaupa hann fyrir næsta tímabil þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af honum mikið lengur,“ sagði Morgan. Piers Morgan minnti áhorfendur Sky Sports síðan á Arsenal-tenginguna á ferli Harry Kane og virtist um leið vera farinn að vinna í því að Kane klæddist aftur Arsenal-treyjunni í framtíðinni. „Við náðum því með Sol Campbell og við ættum því að geta það aftur. Harry Kane er „skytta“ og við munum ná honum aftur. Harry, við þurfum á þér að halda. Komdu aftur heim,“ sagði Morgan. Harry Kane hefur skorað 13 mörk í 14 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni á þessu tímabili en öll þessi þrettán mörk hafa komið í síðustu ellefu leikjum hans.
Enski boltinn Mest lesið Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Extraleikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfjuhlaupi Sport Fleiri fréttir Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjá meira