Næsta ársþing KSÍ verður á Hilton Reykjavik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2017 18:15 Guðni Bergsson er formaður KSÍ. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að næsta ársþing sambandsins verði haldið í Reykjavík og á kunnuglegum slóðum. 72. ársþing KSÍ verður nefnilega haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica en það verður 10. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Þetta verður í þriðja sinn á fjórum árum og í sjötta sinn frá árinu 2011 þar sem ársþing KSÍ er haldið á Hótel Hilton Nordica. Ársþingið í fyrra fór fram í Vestmanneyjum en þar var Guðni Bergsson kosinn nýr formaður KSÍ eftir formannslag við Björn Einarsson. Ársþingið 2014 fór fram í Hofi á Akureyri. Næsta ársþing verður því fyrsta ársþing KSÍ eftir að Guðni tók við sem formaður en framundan er risa ár þar sem íslenska karlalandsliðið tekur þátt í úrslitakeppnin heimsmeistarakeppninnar í fyrsta sinn. Tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 10. janúar næstkomandi. Félögin hafa því enn 36 daga til að setja saman tilltögur að breytingum á reglum sambandsins. Ársþingið verður sett klukkan 11:00 laugardaginn 10. febrúar og er gert ráð fyrir að því ljúki um klukkan 16:00 sama dag.
Íslenski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Sjá meira