„Það er farið að styttast verulega í frumsýningu á þessu risavaxna verkefni sem hafin var vinna við fyrir að verða fimm árum síðan. Eftir langan og strangan þróunar- og fjármögnunarferil hófst framleiðsla myndarinnar á fullu fyrir um tveim árum hér á Íslandi og í Belgíu. Að baki eru um 140 mannár og nú sjáum við til lands í þessu risavaxna verkefni og hlökkum til frumsýningar í byrjun febrúar.“ segir Hilmar Sigurðsson, framleiðandi teiknimyndarinnar.
Myndin fjallar um lóuungann Lóa, sem er ófleygur að hausti þegar farfuglarnir halda suður á bóginn. Lói þarf að lifa af harðan vetur, grimma óvinu og takast á við sjálfan sig til að sameinast ástinni sinni að vori.
Hér fyrir neðan má sjá stikluna.
Framleiðslukostnaður Lóa – þú flýgur aldrei einn er um einn milljarður króna og hún er unnin í samframleiðslu með belgíska teiknimyndafyrirtækinu Cyborn. Sena dreifir myndinni á Íslandi.
Vandað til verka
Leikstjóri myndarinnar er Árni Ólafur Ásgeirsson, söguna skrifaði Friðrik Erlingsson og Gunnar Karlsson er aðstoðarleikstjóri og hönnuður útlits. Matthías Matthíasson og Rakel Björgvinsdóttir hrepptu hlutverk Lóa og Lóu eftir umfangsmikla hlutverkaleit þar sem nær 200 ungmenni komu í prufutökur. Meðal annarra leikara í íslensku útgáfunni eru Ólafur Darri Ólafson, Arnar Jónsson, Þórunn Erna Clausen og Hilmar Snær Guðnason.Tónlistin er í höndum Atla Örvarssonar og er umfangsmesta tónlistarverkefni sem ráðist hefur verið í fyrir kvikmynd hér á landi.
Margir ólíkir listamenn standa á bak við teiknimyndina og vandað er til verka því er óhætt að segja að tilhlökkunin fyrir því að myndin líti dagsins ljós sé mikil, en hún hefur verið í vinnslu í hart nær 5 ár.