Glamour í samstarfi við Estée Lauder sýnir hér tímalausa en rokkaða förðun sem í nokkrum einföldum skrefum hægt hægt að leika eftir. Þessi förðun er tilvalin við hvaða varalit sem er. Áherslan er lögð á sparilegar varir, látlaus augu og gyllta, ljómandi húð.
Á eftir farða er sólarpúður borið á enni og kinnbein fyrir bronslitað og fallegt yfirbragð.
Gyllt ljómapúður er borið ofan á kinnbein, örlítið á enni og niður með nefi.
Augabrúnir eru fallega mótaðar og augnförðunin er gyllt og mild en áhersla er lögð á þykk og dramatísk augnhár.
Því næst er rauður, kremkenndur varalitur borinn á varir.
Hér má sjá Glamour með Hörpu Kára í fararbroddi leika förðunina eftir í myndbandi sem fylgjendur okkar á Instagram fengu beint í æði. Einfalt og þægilegt - njótið!
Myndbandið var tekið upp á Samsung Galaxy S8+.
Glamour