Geðshræring í vél Malaysia Airlines Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. janúar 2018 06:54 Vísir/Getty
Tæknilegir örðugleikar í flugvél hins umdeilda flugfélags Malaysia Airlines urðu til þess að vélinni var nauðlent í gær. Að sögn farþega hafði vélin „nötrað“ og var stefnan því tekin á næstu auðu flugbraut, sem reyndist vera í miðri Ástralíu. Vélin var á leið frá Sydney til Kúala Lúmpúr í gærkvöldi og var komin að strandborginni Broome þegar ákveðið var að snúa við og reyna að lenda á flugvellinum í Alice Springs.Kort breska ríkisútvarpsins má sjá hér að neðan.Vélin var á leið frá Sydney til Kúala Lúmpúr.BBCFarþegar vélarinnar, sem voru um 220 talsins, segja í samtali við fjölmiðla að eftir um 4 klukkustunda flug hafi vélin farið að gefa frá sér mikil óhljóð og tekið að hristast óstjórnlega. „Einhverjir brustu í grát og aðrir tóku að biðja. Þetta var mjög ógnvekjandi,“ er haft eftir farþeganum Sanjeev Pandev. Áhöfnin hafi reynt að gera sitt besta til að róa mannskapinn en að sögn Pandev var hún sjálf „taugaóstyrk og skelkuð.“ Flugmönnunum tókst að lenda vélinni án nokkurra vandkvæða í Alice Springs og reynt verður að flytja farþega á áfangastað í dag. Malaysia Airlines sendi frá sér tilkynningu vegna málsins þar sem sagði að tæknilegum örðuleikum væri um að kenna, án þess að útskýra það neitt nánar. Flugfélagið hefur ítrekað ratað í heimsfréttirnar á undanförnum árum, ekki síst vegna vélar félagsins sem hvarf sporlaust yfir Indlandshafi árið 2014. Sama ár var flugvél á vegum Malaysia Airlines grandað yfir Úkraínu.
Tengdar fréttir MH17: Grunaðir verða sóttir til saka í Hollandi Hollenska utanríkisráðuneytið staðfesti í morgun að áfram verði lögð áhersla á alþjóðlega samvinnu. 5. júlí 2017 10:10 MH370: Gætu fengið rúma sjö milljarða ef brakið finnst Bandaríska fyrirtækið Ocean Infinity gæti fengið allt að 70 milljónir Bandaríkadala frá malasískum yfirvöldum takist að hafa uppi á braki MH370. 10. janúar 2018 10:30 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira
MH17: Grunaðir verða sóttir til saka í Hollandi Hollenska utanríkisráðuneytið staðfesti í morgun að áfram verði lögð áhersla á alþjóðlega samvinnu. 5. júlí 2017 10:10
MH370: Gætu fengið rúma sjö milljarða ef brakið finnst Bandaríska fyrirtækið Ocean Infinity gæti fengið allt að 70 milljónir Bandaríkadala frá malasískum yfirvöldum takist að hafa uppi á braki MH370. 10. janúar 2018 10:30