Þúsund efnamestu eiga nær allt Daníel Freyr Birkisson skrifar 11. janúar 2018 09:32 Þá eiga hundrað efnamestu 64,9 prósent en fimm hundruð efnamestu 89,3 prósent eigið fé. vísir/valli
Þúsund eignamestu einstaklingarnir í íslensku viðskiptalífi eiga nærri allt eigið fé einstaklinga í íslenskum fyrirtækjum, eða yfir 98 prósent. Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt Creditinfo fyrir ViðskiptaMoggann í dag. Það má því segja að fyrir utan það sem stofnanafjárfestar halda á, þá eigi um 0,3 prósent Íslendinga nær öll íslensk fyrirtæki. Þá kemur einnig fram í úttektinni að meira en helmingur alls eigin fjár í eigu einstaklinga sé í höndum einungis fimmtíu aðila, eða 53,4 prósent. Er þar um að ræða tæplega 650 milljarða króna eignarhlut í bókfærðu eigin fé. Enn fremur benda upplýsingar úr gögnum Creditinfo, sem unnar eru upp úr 31 þúsund íslenskum fyrirtækjum, á að tíu eignamestu einstaklingarnir eiga 31,5 prósent af öllu eigin fé einstaklinga í íslensku atvinnulífi. Þá eiga hundrað efnamestu 64,9 prósent en fimm hundruð efnamestu 89,3 prósent. Tölurnar sem unnið er með undanskilja eignir lífeyrissjóða og annarra stofnanafjárfesta og var sú virkni notuð í kerfum Creditinfo að rýna í endanlega eigendur allra íslenskra fyrirtækja.
Efnahagsmál Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira