Elneny skýtur á Sánchez: „Nú eru hérna leikmenn sem berjast fyrir merkið“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. janúar 2018 17:00 Einu sinni vinir. vísir/getty
Arsenal komst í úrslitaleik enska deildabikarsins á miðvikudagskvöldið þegar að liðið lagði Chelsea, 2-1, í seinni undanúrslitaleik liðanna. Frammistaðan var ein sú besta hjá Arsenal á tímabilinu en þar fylgdu Skytturnar vel á eftir 4-1 sigri sínum á Crystal Palace um síðustu helgi. Alexis Sánchez, sem gekk í raðir Manchester United frá Arsenal í byrjun vikunnar, var ekki með í hvorugum leiknum en brotthvarf hans hefur haft jákvæð áhrif á liðið ef marka má Mohamed Elneny, miðjumanns Arsenal.Elneny skellti sér nefnilega á Twitter eftir sigurinn á móti Chelsea og skaut hressilega á Sánchez. Hann nefndi engan á nafn en það þarf ekki meirapróf til að átta sig á því hvað Egyptinn var að meina. „Nú eru leikmenn í liðinu sem eru tilbúnir að berjast hverja einustu mínútu fyrir merkið og stuðningsmennina,“ skrifaði Elneny og létm ynd fylgja af leikmönnum Arsenal að fagna. Arsene Wenger hálfpartinn tók undir orð Elneny á blaðamannafundi eftir leikinn þar sem hann viðurkenndi að staða Sánchez hjá Arsenal var farin að hafa áhrif á liðið. „Þegar að lið veit ekki hvað er að gerast verður einbeitingin minni og það hefur áhrif á frammistöðuna. Nú vitum við hvað við erum að kljást við þannig að allir gefa aðeins meira af sér,“ sagði Arsene Wenger.Now there are players fighting every minute for the logo and the fans #WeAreTheArsenalWembley time pic.twitter.com/reiS70hMRd— Mohamed ELNeny (@ElNennyM) January 25, 2018
Enski boltinn Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Sjá meira