Bjarni Ármannsson kominn í hreinlætisvörubransann Birgir Olgeirsson skrifar 23. janúar 2018 11:36 Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis. Vísir/Vilhelm
Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á kaup einkahlutafélagsins Sjávargrundar á öllu hlutafé í Tandri ehf. Þetta kemur fram í úrskurði Samkeppniseftirlitsins en þar segir að starfsemi Tandurs felist í innflutningi, framleiðslu, sölu og dreifingu á hreinlætisvörum til fyrirtækja og stofnana um allt land. Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Sjávargrund ehf og Tandur hf. starfi á ótengdum mörkuðum og auka því ekki markaðshlutdeild sína eða styrkja hana í kjölfar samrunans. Hluthafar í Sjávargrund eru Sjávarsýn, sem á áttatíu prósent, og Svangrund, sem á 20 prósent. Sjávarsýn er í eigu Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis, en Svangrund var stofnað í tengslum við þessi viðskipti og er að jöfnu í eigu tveggja af núverandi hluthöfum Tundurs. Dótturfélög í eigu Sjávarsýnar eru Gasfélagið, sem flytur inn fljótandi gas og gashylki, Ísmar ehf., sem sérhæfir sig í tækjabúnaði til hverskonar landmælinga, vélstýringa og lasertækni, og Tölvuþjónustan ehf. sem hefur verið afskráð og sameinuð Sjávarsýn en hafði þann tilgang að annast sölu og þjónustu með tölvu- og hugbúnaði, rafræna afritun og hýsing gagna, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og aðra skylda starfsemi.
Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Fleiri fréttir Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sjá meira