Pilturinn segir ástarfund með frjálsum vilja beggja Kristján Már Unnarsson skrifar 20. janúar 2018 20:30 Erna Solberg forsætisráðherra og Trine Skei Grande menningarmálaráðherra þegar ný rikisstjórn Noregs var kynnt á miðvikudag. Mynd/TV-2, Noregi.
Ungi maðurinn, sem kemur við sögu í mest umtalaða máli Noregs þessa dagana, hefur nú sagt sína hlið á því sem gerðist í samskiptum hans og Trine Skei Grande í brúðkaupsveislu í Þrændalögum fyrir tíu árum. Trine, sem er formaður Venstre-flokksins og nýtekin við embætti menningarmálaráðherra, hefur í blaðaviðtölum þurft að sverja af sér ásakanir í samfélagsmiðlum um að hafa misnotað ungan pilt. Hann var þá 17 ára en hún 38 ára, og orðin þingmaður á Stórþinginu og varaformaður flokksins. Í viðtali við Verdens Gang kemur fram að manninum, sem nú er 26 ára gamall, hafi verið brugðið þegar hann heyrði hennar útgáfu á því sem gerðist á þessu ágústkvöldi síðsumars árið 2008. Því hafi hann ákveðið að skýra málið frá sinni hlið, án þess þó að vera nafngreindur opinberlega. „Við höfðum bæði drukkið. Við gengum afsíðis og enduðum í jaðrinum á kornakri þar sem við lágum saman,“ segir maðurinn en vill ekki lýsa því nánar sem svo gerðist. Hann tekur þó fram að það hafi verið með frjálsum vilja beggja. Í viðtalinu kemur fram að þau Trine hafi skipst á skilaboðum og talað saman eftir að netmiðillinn Resett birti fyrstu frétt af málinu í byrjun mánaðarins. „Þá brá mér. Hún sagði mér sína útgáfu; að það hefði verið veisla og að ég hefði farið með hana á bak við hús og þar hefði ég farið upp á hana.“ Þrátt fyrir að atvikalýsingu þeirra beri ekki saman virðast þau sammála um að þau hafi bæði gengið til þessa af fúsum og frjálsum vilja, engri nauðung hafi verið beitt, og ekkert lögbrot framið en samræðisaldur í Noregi er 16 ár. Á myndskeiði í frétt Verdens Gang má sjá hvar fréttamenn þráspyrja Ernu Solberg forsætisráðherra um hvort frásögn mannsins sé í samræmi við þá lýsingu sem Trine gaf Ernu á atburðinum.
Tengdar fréttir Kvennastjórn í skugga krassandi kynlífssögu Ný hægrigræn ríkisstjórn tók við völdum í Noregi í dag. Sögusagnir um kynlífshneyksli nýs menntamálaráðherra skyggja hins vegar á stjórnarskiptin. 17. janúar 2018 21:00 Trine segist ekki hafa gert neitt saknæmt Trine Skei Grande, nýr menningarmálaráðherra Noregs, segist ekki ætla að tjá sig um uppákomu sem varð árið 2008 en segist í viðtali við Verdens Gang telja að hún hafi ekki gert neitt saknæmt. 18. janúar 2018 11:00 Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira
Kvennastjórn í skugga krassandi kynlífssögu Ný hægrigræn ríkisstjórn tók við völdum í Noregi í dag. Sögusagnir um kynlífshneyksli nýs menntamálaráðherra skyggja hins vegar á stjórnarskiptin. 17. janúar 2018 21:00
Trine segist ekki hafa gert neitt saknæmt Trine Skei Grande, nýr menningarmálaráðherra Noregs, segist ekki ætla að tjá sig um uppákomu sem varð árið 2008 en segist í viðtali við Verdens Gang telja að hún hafi ekki gert neitt saknæmt. 18. janúar 2018 11:00