Lengjubikarinn fór af stað með látum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. febrúar 2018 21:07 Alexander Veigar Þórarinsson skoraði tvö mörk í kvöld vísir/ernir
Grindavík bar sigurorð af HK í fyrsta leik Lengjubikars karla sem fram fór í Kórnum í kvöld. Guðmundur Þór Júlíusson kom HK yfir eftir hálftíma leik og fór HK með eins marks forystu til leikhlés. Það tók Grindvíkinga rúman klukkutíma að brjóta ísinn en það gerði Alexander Veigar Þórarinsson. Hann var svo oftur á ferðinni á 87. mínútu þegar hann skoraði úr víti, en í milli tíðinni hafði Nemanja Latinovic komið Grindvíkingum yfir. Fyrirliðinn Gunnar Þorsteinsson innsiglaði svo sigur Grindvíkinga með fjórða markinu rétt fyrir lok venjulegs leiktíma. Grindavík fer því á toppinn í riðli 4. Í riðli 1 fór ÍA með öruggan sigur á Fram, 4-0. Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik en Skagamenn hrukku í gang í seinni hálfleik. Arnar Már Guðjónsson kom ÍA á bragðið á 50. mínútu áður en Ólafur Valur Valdimarsson tvöfaldaði forystuna níu mínútum seinna. Hilmar Halldórsson skoraði þriðja markið á 86. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar gulltryggði Bjarki Steinn Bjarkason 4-0 sigur. Kristófer Jacobson Reyes fékk sitt annað gula spjald í leiknum á 78. mínútu og var því rekinn í sturtu og spilaði ÍA manni fleirri síðustu mínúturnar. Það var meiri spenna í opnunarviðureign riðils 2 þar sem KR og Þróttur mættust. Karl Brynjar Björnsson kom Þrótti yfir á 39. mínútu og fóru þeir rauðröndóttu með eins marks forystu í hálfleikinn. KR-ingar skoruðu svo tvö mörk á þriggja mínútna kafla undir lok leiksins og stálu sigrinum. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira