Segir eiginmann sinn hafa stolið úr sér nýra Samúel Karl Ólason skrifar 7. febrúar 2018 23:45 „Hann varaði mig við því að ég mætti ekki segja nokkrum manni frá aðgerðinni.“ Vísir/AFP
Indversk kona hefur sakað eiginmann sinn um að stela úr sér nýra og selja það. Eiginmaðurinn og bróðir hans hafa verið handteknir vegna málsins en þeir munu hafa stolið nýranu og selt það eftir að hafa kvartað yfir skorti á heimanmundi sem fylgdi konunni sem heitir Rita Sarkar. Hún segir eiginmann sinn hafa beitt sig ofbeldi vegna heimanmundarins í mörg ár. Fyrir um tveimur árum hafi hún svo farið í aðgerða vegna botnlangakasts. Nú hafa rannsóknir sýnt fram á að annað nýra konunnar hefur verið fjarlægt. „Eiginmaður minn fór með mig á einkastofu í Kolkata, þar sem hann og starfsmennirnir sögðu mér að heilsa mín myndi skána eftir að botnlanginn yrði fjarlægður í skurðaðgerð,“ er haft eftir Sarkar í frétt BBC. „Hann varaði mig við því að ég mætti ekki segja nokkrum manni frá aðgerðinni.“ Löngu seinna fór hún til læknis vegna veikinda og sýndu myndatökur að annað nýra hennar hefði verið fjarlægt og það var svo staðfest í rannsókn. „Þá skildi ég hvers vegna ég mátti engum segja frá aðgerðinni. Hann seldi nýra mitt vegna þess að fjölskylda mín gat ekki staðist kröfur hans um heimanmund.“ Lögreglan segir þrjá hafa verið ákærða fyrir manndrápstilraun og að pynta brúði.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Fleiri fréttir Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Sjá meira