Messan: Gummi Ben gerði Hjörvar nánast orðlausan í beinni í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2018 10:00
Victor Wanyama skoraði stórkostlegt mark fyrir Tottenham í jafnteflinu á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær en markið hans bauð líka upp á mjög fyndið atriði í Messunni. Guðmundur Benediktsson sjá um Messuna í gær og gestir hans voru þeir Hjörvar Hafliðason og Reynir Leósson. Að sjálfsögðu var vel fjallað um stórleik gærdagsins á milli Liverpool og Tottenham. Umfjöllunin byrjaði þá á aðeins öðruvísi hátt en venjulega. „Áður en við höldum lengra þá verð ég bara að spóla viku til baka,“ byrjaði Guðmundur Benediktsson og sýndi svo skot Victor Wanyama frá því í leik Tottenham og Southampton. Hjörvar Hafliðason var þá mættur í Messuna og var með orðið. „Það er ekkert sem pirrar mig meira í fótbolta en þegar leikmaður, sem getur ekki skotið á markið, skýtur á markið langt fyrir utan teig þegar það er pressa í lokin. Það er einmitt þetta,“ sagði Hjörvar og um leið er sýnd skot Victor Wanyama frá því í uppbótartíma fyrrnefnds leiks. „Þetta gerir mig geðveikan, þegar mitt lið er að spila og það kemur svona skot á 93. mínútu. Af hverju heldur Keníamaðurinn að hann geti skotið þaðan,“ spurði Hjörvar. Svo var aftur skipt yfir í beina útsendingu og mátti heyra þá Gumma Ben og Reyni hlæja að vikugamalli yfirlýsingu Hjörvars. Victor Wanyama var nefnilega nýbúinn að skora með frábæru langskoti, mark sem kemur sterklega til greina sem eitt af mörkum tímabilsins. Það má sjá þetta allt saman í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Fleiri fréttir Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Sjá meira