Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 08:02 Ísland er kannski ekki með mjög ungt lið en flestir lykilmenn íslenska landsliðsins eiga engu að síður mörg mót eftir í „præminu“. Vísir/Vilhelm Framtíð íslenska karlalandsliðsins í handbolta var til umræðu í Besta sætinu eftir að íslenska liðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í ár. Þar eru sérfræðingarnir sammála um að liðið sé á góðum aldri til að vinna enn frekari afrek á næstu árum.
Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á EM. Strákarnir okkar gengu hnýptir og svekktir af velli en sú tilfinning ætti að vera eldsneyti í tankinn til að gera enn meira á næstu stórmótum. Næst er heimsmeistaramótið eftir ár og svo ár með bæði Evrópumóti og Ólympíuleikum. Þrjú stórmót á næstu tveimur og hálfu ári. „Við vorum aðeins að ræða aldurssamsetninguna á þessu liði. Bjarki er 36 ára á þessu ári og Björgvin er náttúrulega bara markmaður og hann getur verið í fimm ár í viðbót. Annars eru þetta bara strákar sem eru að fara að vera næstu fjögur, fimm árin,“ sagði Stefán Árni Pálsson. Haukur loksins á svona góðan stað Rúnar Kárason horfir sérstaklega til Hauks Þrastarsonar sem að hans mati er nú kominn á þann stað sem getur nýst honum og landsliðinu vel. „Loksins er Haukur bara kominn á svona góðan stað á sínum ferli. Það eru búin að vera bara meiðsli og ekki kjöraðstæður í gangi hjá honum. Núna er hann kominn í þýsku Bundesliguna og að spila vel. Ég gæti bara trúað því að Haukur sé að fara að verða betri upp úr þessu og verða leikmaðurinn sem við erum búin að trúa á að hann geti orðið,“ sagði Rúnar. Einar Jónsson segir íslenska landsliðið vera að stærstum hluta á frábærum stað til að geta byggt ofan á þetta mót á næstu árum. Eiga ekkert eðlilega mikið eftir „Varðandi bara liðið í heild sinni, á hvaða aldri það er, þá má ekki gleyma því að besta íslenska landsliðið nokkurn tímann, silfurliðið á Ólympíuleikunum, ef við bara segjum bara Óla Stef-liðið. Það er bara plús 30 ára á þeim tíma,“ sagði Einar en Ólafur Stefánsson var 35 ára sumarið sem liðið vann silfurverðlaunin í Peking. „Hann verður svo bara besti handboltamaður í heimi næstu þrjú til fjögur árin þar á eftir. Þessir gaurar eiga ekkert eðlilega mikið eftir en jú, hin liðin eru heldur ekkert það gömul. Ef við horfum á þýska landsliðið þá eru þeir bara kornungir, þannig að það er bara barátta fram undan,“ sagði Einar. Ekki bara kósí og huggulegt að vera í íslenska landsliðinu „En ef við bara lítum algjörlega inn á við, ‚præmið' hjá þessu liði er ekkert endilega núna. Það er eftir einhver ár. Þetta á ekki að vera allt of gott fyrir þá heldur. Við þurfum að gera kröfu um það að einhverjir aðrir komi þarna inn og þrýsti á þá. Þetta á ekki að vera bara kósí og huggulegt að vera í íslenska landsliðinu. Það þarf að setja pressu á þá og láta þá finna fyrir því,“ sagði Einar. Rúnari finnst þetta landslið vera nálægt því að vera á þeim stað í dag og gullkynslóðin var undir forystu Ólafs Stefánssonar. Setti fram áskorun „Þetta lið er bara komið á svipaðan stað ef við berum saman félagsliðin sem þeir eru að spila í. Vonandi halda menn bara dampi og við séum að fara að sjá bara bætingar,“ sagði Rúnar. Hann vill líka sjá leikmennina sem eru næstir inn taka á sig og stíga næstu skref. „Bara gæjarnir sem langar að komast í landsliðið. Ég ætla nú kannski bara að fá að koma með smá áskorun. Að markmið landsins fari nú bara að rífa sig í gang og setja almennilega pressu á Bjögga [Björgvin Pál Gústavsson],“ sagði Rúnar. Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Tengdar fréttir „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31 Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. 1. febrúar 2026 19:00 EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. 1. febrúar 2026 18:47 „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. 1. febrúar 2026 17:16 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira
„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 1. febrúar 2026 21:31
Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. 1. febrúar 2026 19:00
EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. 1. febrúar 2026 18:47
„Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. 1. febrúar 2026 17:16