Ástvinir skipverja ekki af baki dottnir Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. febrúar 2018 05:54 Kafbáturinn var orðinn 34 ára gamall og sögðu margir hann vera í slæmu ástandi. Vísir/EPA
Aðstandendur 44 skipverja á argentínska kafbátnum sem hvarf á síðasta ári hafa hafið hópsöfnun til að halda megi leitinni áfram. Argentínski sjóherinn hætti formlegri leit að kafbátnum í desember síðastliðnum, um tveimur vikum eftir að hann hvarf sporlaust. Þrátt fyrir ítarlega, alþjóðlega leit sem engum árangri skilaði hafa aðstandendur skipverjanna ekki gefið upp alla von. Þeir kalla nú eftir fjárframlögum almennings og biðla til fólks að leggja sér lið, hvort sem það er með mannskap eða tæknibúnaði sem komið gæti að notum. Hvorki tangur né tetur hefur sést af kafbátnum og óttast er að allir innanborðs séu látnir. Skipverjar höfðu ekki súrefnisbirgðir fyrir nema 10 daga köfun og ætla má að þær hafi klárast um miðjan desembermánuð. „Við viljum halda leitinni áfram, við munum ekki hætta. Við erum í sannleiksleit og þú getur aðstoðað okkur. Með litlu framlagi getum við tekið stórt skref. Hjálpaðu okkur,“ segir í yfirlýsingu frá aðstandendum sem mótmæltu ákvörðun sjóhersins um að hætta leitinni hástöfum. Margir voru ósáttir við skýringar hersins en aðrir sögðu ekki geta syrgt ástvini sína nema líkin þeirra fyndust. Argentínsk stjórnvöld eru reiðubúin að borga um 500 milljónir íslenskra króna fyrir upplýsingar sem gætu leitt til þess að kafbáturinn finnist.
Tengdar fréttir Segja kafbátinn hafa staðist allar öryggisprófanir Argentínski sjóherinn vísar því á bug að 34 ára gamli kafbáturinn ARA San Juan sem hvarf 15. nóvember hafi verið í slæmu ástandi. 26. nóvember 2017 10:51 Hafa gefið upp alla von um að finna áhöfn kafbátsins á lífi Leit að kafbátnum á sjávarbotni stendur þó enn yfir. 30. nóvember 2017 23:30 Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Fleiri fréttir Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Sjá meira
Segja kafbátinn hafa staðist allar öryggisprófanir Argentínski sjóherinn vísar því á bug að 34 ára gamli kafbáturinn ARA San Juan sem hvarf 15. nóvember hafi verið í slæmu ástandi. 26. nóvember 2017 10:51
Hafa gefið upp alla von um að finna áhöfn kafbátsins á lífi Leit að kafbátnum á sjávarbotni stendur þó enn yfir. 30. nóvember 2017 23:30