„Metnaðarlaus“ starfsumsókn Steve Jobs metin á fimm milljónir króna Birgir Olgeirsson skrifar 25. febrúar 2018 10:26 Steve Jobs fyllti út starfsumsóknina þremur árum áður en hann stofnaði Apple. Vísir/Getty
Starfsumsókn Steve Jobs, stofnanda Apple, frá áttunda áratug síðustu aldar er talin eiga eftir að seljast á 50 þúsund dollara, eða því sem nemur um fimm milljónum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, á uppboði.Fjölmiðlar ytra hafa veitt þessari umsókn þessa merka manns mikla athygli, sér í lagi fyrir það hversu lítinn metnað hann virðist hafa lagt í hana. Umsóknina fyllti hann út árið 1973, eða þremur árum áður en hann stofnaði Apple-fyrirtækið sem gerði hann að einum af valdamestu og þekktustu mönnum heims. Á umsókninni sagði hann hæfileika hans leynast í raftækni og hönnunarverkfræði og hakaði við „Já“ þar sem hann var spurður hvort hann hafi þekkingu á tölvum.Starfsumsóknin er talin eiga eftir að seljast á 50 þúsund dollara.RR AuctionEkki er vitað hvaða starf það var sem Jobs sótti um með þessari umsókn eða hvort hann fékk það. Ættarnafn sitt ritaði hann með litlum upphafsstaf og sagði „reed háskólann“ vera heimili sitt, en hann sótti nám þar í borginni Portland um skamma stund áður. Á umsókninni má sjá að Jobs var með bílpróf en þegar hann var spurður hvort hann hefði aðgengi að bíl svaraði hann „mögulega, en líklega ekki“ Steve Jobs lést árið 2011 eftir baráttu við krabbamein. Uppboðið á starfsumsókn hans fer fram í Boston í Bandaríkjunum.
Tengdar fréttir Starfsmenn Apple ganga ítrekað á glerveggi í höfuðstöðvum fyrirtækisins Eru sagðir svo niðursokknir í síma sína að þeir taki ekki eftir ómerktum glerveggjunum. 16. febrúar 2018 21:37 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Starfsmenn Apple ganga ítrekað á glerveggi í höfuðstöðvum fyrirtækisins Eru sagðir svo niðursokknir í síma sína að þeir taki ekki eftir ómerktum glerveggjunum. 16. febrúar 2018 21:37