Mohamed Salah: Minn draumur er að vinna ensku deildina og vinna hana með Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2018 14:30 Mohamed Salah. Vísir/Getty
Mohamed Salah hefur átt frábært fyrsta tímabil með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og hann skoraði sitt þrítugasta mark á tímabilinu í febrúar. Liverpool keypti Egyptann frá Roma síðasta sumar og það eru ein bestu kaup ensks liðs í langan tíma. Liverpool-liðið kemst upp í annað sætið í deildinni með sigri á West Ham en liðið er síðan komið með annan fótinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 5-0 sigur á Porto í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar. Salah er með 22 mörk og 7 stoðsendingar í 26 deildarleikjum en þessi 25 ára leikmaður var keyptur á „aðeins“ 34 milljónir punda í sumar.Mohamed Salah: My Liverpool FC dream https://t.co/Z0NOlF1VdNpic.twitter.com/dMMlcAYQ9l — Liverpool FC (@LFC) February 23, 2018 „Ég kom hingað til að vinna titla. Ég get lofað stuðningsmönnunum því að við erum að leggja okkur hundrað prósent fram við það að reyna að vinna eitthvað fyrir félagið,“ sagði Mohamed Salah við Football Focus á BBC. „Það er liðin langur tími síðan að félagið vann ensku deildina. Minn draumur er að vinna ensku deildina og vinna hana með Liverpool,“ sagði Salah. Liverpool vann ensku deildina árið 1990 og hefur aldrei unnið ensku úrvalsdeildina (síðan 1992/93)."I think he can and will get even better."@Totti on @22mosalah: https://t.co/KjakeVS0Ywpic.twitter.com/xc2ctYq6yM — Liverpool FC (@LFC) February 22, 2018 „Ef þú berð mig saman í dag og fyrir fimm árum síðan þá hefur allt breyst hjá mér bæði andlega og líkamlega. Ég reyni að bæta mig á hverjum degi og set alltaf þá pressu á mig sjálfan að gera enn betur,“ sagði Salah. Hann lék með Chelsea tímabilið 2014-15 en fór þá á lán til Fiorentina og svo til Roma. „Fótboltinn á allt mitt líf. Ég hugsa bara um fótbolta,“ sagði Salah.
Enski boltinn Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Handbolti „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Sjá meira