„Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Aron Guðmundsson skrifar 1. febrúar 2026 23:03 Bryndís Arna er mætt í Kópavoginn og orðin leikmaður Breiðabliks Vísir/Lýður Eftir meiðslum hrjáð ár úti í atvinnumennskunni er Bryndís Arna Níelsdóttir komin aftur heim og gengin í raðir ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks. Hvalreki fyrir Blika komist hún aftur á beinu brautina eins og hún stefnir á að gera.
Bryndís Arna er aðeins 22 ára gömul og áður en hún hélt út í atvinnumennskuna til Vaxjo í Svíþjóð, fyrir tveimur árum síðan, raðaði hún inn mörkum fyrir lið Vals og varð markadrottning Bestu deildarinnar tímabilið 2023 þegar Valur stóð uppi sem Íslandsmeistari. Í Svíþjóð hafa meiðsli verið að plaga Bryndísi nær óslitið frá apríl á síðasta ári og því ákvað hún að snúa aftur heim og komast aftur á rétt skrið. Geri hún það er ljóst að um hvalreka sé að ræða fyrir Blika, sem hafa misst marga sterka pósta eftir að liðið varð tvöfaldur meistari hér heima á síðasta tímabili. „Það hefur verið mikil blóðtaka en enn til staðar góður kjarni í hópnum og mér list bara vel á þjálfarateymið líka. Liðið er í skemmtilegu verkefni þessar vikurnar í Evrópu. Ég er bara spennt fyrir því að hjálpa liðinu í því verkefni og vinna aftur báða titlana,“ segir Bryndís Arna í samtali við íþróttadeild. Kom ekkert til greina að snúa aftur í Val? „Jú það kom auðvitað alltaf til greina. Ég talaði við mörg lið, fór á einhverja fundi en fannst stemningin í Breiðabliki góð, lýst vel á þjálfarateymið. Það var líka mikilvægt fyrir mig að vera hjá liði með gott sjúkrateymi og mér lýst vel á það hér. Mér finnst þetta rétti kosturinn fyrir mig í dag.“ Bryndís í leik með íslenska landsliðinuvísir/Hulda Margrét Planið að komast aftur út Nú sé vonandi að baki krefjandi meiðslatímabil en Bryndís, sem á að baki 7-A landsleiki fyrir Íslands hönd, stefnir á að geta látið til sín taka í Lengjubikarnum fyrir upphaf Bestu deildarinnar. „Þetta er búið að vera mjög langt tímabil. Gerist í apríl og ég hef nánast ekkert spilað síðan þá og árið áður hafði ég líka verið að glíma við meiðsli. Tímabilin mín erlendis einkenndust ekki mikið af því að spila fótbolta og það að spila fótbolta er það sem ég vel sem mest gera af. Á bakvið það að koma heim núna felst sú hugsun að spila á nýjan leik, ná mér heillri aftur. Þetta er búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en gerist í íþróttum.“ Hún stefnir á að komast aftur út í atvinnumennskuna á einhverjum tímapunkti. „Burtséð frá meiðslunum fannst mér mjög gaman í atvinnumennskunni og fékk smá smjörþefinn af því þarna úti. Klárlega er planið að fara aftur út, það bara gerist þegar að það gerist en markmiðið mitt núna er að ná mér heillri, eiga gott tímabil, hjálpa liðinu að vinna þessa titla og komast áfram í Evrópu.“
Besta deild kvenna Breiðablik Íslenski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spurðu stuðningsmenn Man United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir KA hættir samstarfinu við Þór og kvennalið Þór/KA heyrir sögunni til Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira