Seinni bylgjan: Æsispennandi toppbarátta fram undan Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. mars 2018 14:30 Staðan í Olís deild karla eftir 20. umferð vísir
Toppbaráttan í Olís deild karla er galopin og geta þrjú lið unnið deildarmeistaratitilinn þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. FH er á toppnum með 32 stig. Næstir koma Selfyssingar með 30 stig og ÍBV er svo með 28 stig í 3. sætinu. Eyjamenn eiga hins vegar leik til góða vegna þáttöku þeirra í Evrópukeppni. Sá leikur er gegn ÍR og má gera fastlega ráð fyrir því að sá leikur vinnist. Í næstu umferð, sem er þó ekki leikin fyrr en 18. mars vegna bikar og landsleikjahlés, mætast FH og Selfoss. Selfoss á innbyrðis viðureign á FH, svo ef Sunnlendingarnir vinna þann leik þá fara þeir í toppsætið og eiga svo leik gegn botnliði Víkings í síðustu umferðinni. Strákarnir í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport ræddu stöðuna í deildinni í gærkvöld og veltu fyrir sér hvað myndi gerast ef öll liðin yrðu jöfn að 22. umferðum loknum. „Nú bara verður þú að hringja í vin,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson. „Ég stend í þeirri meiningu að það sé þá innbyrðismarkatala þessara þriggja liða,“ sagði Sebastian Alexandersson. Ef Selfoss vinnur FH og ÍBV nær þeim ekki að stigum þá verður Selfoss deildarmeistari. En sérfræðingarnir voru ekki með það á hreinu hvað myndi gerast ef þrjú lið yrðu jöfn á toppnum. Umræðuna úr Seinni bylgjunni má sjá í heild sinni hér að neðan.Miðvikudaginn 14. mars: ÍBV - ÍR, frestaður leikur úr 18. umferð21. umferð, sunnudaginn 18. mars: Fjölnir - Haukar FH - Selfoss Valur - Afturelding Víkingur - Grótta ÍR - Fram ÍBV - Stjarnan22. umferð, miðvikudaginn 21. mars: Selfoss - Víkingur Haukar - Valur Fram - ÍBV Stjarnan - FH Grótta - Fjölnir Afturelding - ÍR
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira