Skiluðu inn 57 þúsund skotvopnum Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. mars 2018 07:24 Þessi forláta sprengjuvarpa var meðal vopnanna sem skilað var inn. Áströlsk stjórnvöld
Íbúar Ástralíu skiluðu 57 þúsund skotvopnum til yfirvalda á síðasta ári. Á þriggja mánaða tímabili í fyrra gátu allir skilað inn óskráðum og ólöglegum skotvopnum án þess að eiga hættu á nokkrum eftirmálum af því. Þetta var gert í annað sinn í landinu, en slíkur háttur var einnig hafður á árið 1996 þegar morðingi skaut fjölda manns til bana í Tasmaníu. Eftir skotárásina, sem kennd er við Port Arthur, var byssulöggjöfin í Ástralíu tekin í gegn. Síðan þá hafa ekki verið framin fjöldamorð með skotvopnum í landinu. Fjölmargir Bandaríkjamenn horfa til reynslu Ástrala þegar rætt er um herta skotvopnalöggjöf vestanhafs. Hugmyndin með þriggja mánaða átakinu er að fækka ólöglegum vopnum í landinu og eru yfirvöld mjög ánægð með árangurinn, sem geri samfélagið öruggara. Meðal vopnanna sem rötuðu á borð stjórnvalda þessa þrjá mánuði voru 2500 sjálfvirk skotvopn, 2900 skammbyssur og sprengjuvarpa, sem sjá má hér að ofan. Um þriðjungi vopnanna var fargað meðan öðrum var komið í sölu. Lögreglan telur að um 260 þúsund skotvopn megi enn finna í undirheimum Ástralíu.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira