Fá leyfi til að höggva niður þrefalt landsvæði Íslands úr regnskóginum Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. mars 2018 07:04 Náttúruverndarsinnar eru æfir vegna breytinganna. Vísir/Getty
Hæstiréttur Brasilíu hefur staðfest umtalsverðar breytingar á náttúruverndarlögum er lúta að Amazon-regnskógunum. Náttúruverndarsinnar segja að breytingarnar muni hafa geigvænlegar afleiðingar fyrir lífríki svæðisins. Meðal þess sem hin nýju lög kveða á um er sakaruppgjöf fyrir landeigendur sem fellt hafa niður tré í skóginum í leyfisleysi á síðustu árum. Talsmenn náttúruverndarsamtaka hafa bent á að breytingarnar muni hvetja til enn frekara skógarhöggs en aðrir segja að það sé af hinu góða. Nýju lögin gefi bændum sjálfstraustið til að stuðla að enn frekari vexti brasilísks efnahags, eins og það er orðað á vef breska ríkisútvarpsins. Amazon-skógurinn er stærsti regnskógur í heiminum og er lífríki hans rómað fyrir fjölbreytni og fegurð. Langstærstur hluti skógarins er í Brasilíu þar sem lög frá miðri síðustu öld kveða á um að landareignir verði að vera skógi vaxnar að hluta. Hlutfallið er á bilinu 20 til 80%, hæst við Amazon-regnskóginn. Með nýju lögunum lækkar þetta hlutfall og má nú höggva niður tré á landssvæði sem nemur 290 þúsund ferkílómetrum, næstum þreföldu flatarmáli Íslands. Náttúruverndarsinnar eru sem fyrr segir æfir, ekki síst vegna þessa að nýju lögin leyfa ræktun á árbökkum og hæðum, svæðum sem eru sérstaklega viðkvæm fyrir jarðvegsrofi. Talsmenn stjórnvalda segjast þó sáttir, fyrri lög hafi verið íþyngjandi og bændur svæðisins búi nú við aukið jafnvægi í varðveislu og nýtingu.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira