Laun stjórnar Arion banka hækkuð Birgir Olgeirsson skrifar 15. mars 2018 18:18 Höfuðstöðvar Arion banka. Vísir/Stefán
Laun stjórnarmanna Arion banka voru hækkuð á aðalfundi bankans fyrr í dag. Fór fundurinn fram í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni en á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur bankans var samþykktur. Breytingar voru samþykktar á launum stjórnar í samræmi við þróun launavísitölu sem fela í sér 6,8% hækkun á milli ára. Einnig var starfskjarastefna bankans samþykkt óbreytt frá fyrra ári. Ákveðið var að Deloitte ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans í samræmi við ákvörðun aðalfundar 19. mars 2015. Samþykkt var að veita stjórn tímabundna heimild til útgáfu skuldabréfa sem mynda viðbótar eigin fjár þátt 1. Tillaga stjórnar um að greiða ekki út arð var samþykkt en stjórn bankans hefur víðtæka heimild til að leggja fram tillögu um arðgreiðslu eða aðra ráðstöfun eigin fjár og því mun stjórnin mögulega boða til aukahluthafafundar fram að næsta aðalfundi, þar sem tillaga um slíka ráðstöfun yrði lögð fyrir. Fram kom að stjórn Arion banka hafi tekið til ítarlegrar skoðunar þann möguleika að arðgreiðsla færi fram með hlutabréfum, þ.e. hlutabréfum í Valitor Holding, en að stjórnin væri þeirrar skoðunar að slíkt þarfnaðist ítarlegra mats. Á fundinum voru eftirfarandi endurkjörnir í stjórn bankans: Brynjólfur Bjarnason, Eva Cederbalk, Jakob Már Ásmundsson, John P. Madden, Måns Höglund og Steinunn Kristín Þórðardóttir. Jafnframt var Herdís Dröfn Fjeldsted kjörin ný í stjórn bankans en Kirstín Th. Flygenring og Þóra Hallgrímsdóttir hætta í stjórninni. Steinunn er tilnefnd af Attestor Capital, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum. Varamenn í stjórn bankans voru einnig endurkjörnir. Varamenn eru: Ólafur Örn Svansson, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og Þórarinn Þorgeirsson.
Mest lesið Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira