Arnar hættir eftir tímabilið í Eyjum Anton Ingi Leifsson skrifar 14. mars 2018 22:57 Arnar vísir/anton
Arnar Pétursson mun hætta sem þjálfari ÍBV eftir yfirstandandi tímabil er því kemur fram á vef Morgunblaðsins nú í kvöld. ÍBV varð bikarmeistari um helgina, en margt og mikið hefur gengið á í Eyjum síðan þá. ÍBV varð bikarmeistari um helgina þegar þeir unnu Fram, en Vísir greindi frá því að til átaka hafi komið í fögnuði liðsins svo að aðstoðarþjálfari liðsins var handtekinn eftir að hafa ráðist að hornamanni liðsins, Theodóri Sigurbjörnssyni.Í kvöld vann ÍBV svo góðan sigur á ÍR sem heldur liðinu á lífi í baráttunni um deildarmeistaratitilinn, en Sigurbergur Sveinsson og Róbert Aron Hostert voru ekki með liðinu vegna þess að þeir voru settir í agabann. Þeir áttu að hafa gengið full langt í fögnuðinum um helgina. Þetta er þriðja tímabilið sem Arnar þjálfar liðið einn, en hann hefur verið viðloðandi liðið frá því árið 2009. Eitt tímabilið þjálfaði hann liðið með Gunnari Magnússyni, en það er árið sem ÍBV varð Íslandsmeistari. Árið áður, eða tímabilið 2012-2013, þjálfaði hann liðið með Erlingi Richardssyni.
Olís-deild karla Mest lesið Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Dómari sleginn niður í kvennaleik Körfubolti Messi eyddi kvöldinu með Trump Fótbolti „Hugsaði hvernig ég gæti réttlætt þennan lífstíl fyrir mér áfram“ Sport Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti „Láttu í þér heyra, Orri!“ Fótbolti Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Enski boltinn Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Íslenski boltinn Hleypur kílómetra hring hundrað sinnum og stefnir á stigamet Sport „Konan mín gagnrýndi það sem ég sagði og mamma mín líka“ Fótbolti Fleiri fréttir Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sjá meira