Báru eld að íbúð látinnar konu Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. mars 2018 07:18 Ráðist var á Mireille Knoll á heimili hennar. Vísir/AFP
Franskir saksóknarar telja að morðingi 85 ára gamallar konur af gyðingaættum, sem fannst illa leikin í rústum íbúðar sinnar, hafi látið andúð sína á gyðingum ráða för. Því sé ekki aðeins um morð að ræða heldur einnig hatursglæp. Konan, Mireille Knoll, hafði verið stungin með eggvopni nokkrum sinnum áður en eldur var borinn að íbúð hennar. Í frétt breska ríkisútvarpsins kemur fram að Knoll hafi verið ein þeirra gyðinga sem komst hjá því að lenda í klóm Vel d'Hiv-aðgerðarinnar, þegar um 13 þúsund gyðingum í París var smalað saman og þeir svo sendir í útrýmingarbúðir nasista. Tveir menn, 22 ára og 29 ára gamlir, hafa verið handteknir í tengslum við málið. Franska lögreglan telur sig nokkuð vissa í sinni sök og bendir á að annar þeirra hefur áður verið dæmdur fyrir að misnota 12 ára stúlku sem hafði gist í íbúð Knoll. Hin látna hafði einnig gert lögreglunni viðvart um að nágrannar hefðu hótað að kveikja í íbúð hennar. Haft er eftir syni Knoll að hann sé í áfalli vegna málsins. Hann geti hreinlega ekki skilið hvernig einhverjum detti í hug að myrða konu sem hefur ekkert á milli handanna og býr þar að auki í félagsíbúð. Samtök franskra gyðinga fordæma morðið og lýsa yfir áhyggjum af fjölgun hatursglæpa í garð gyðinga á síðustu misserum. Hér að neðan má sjá færslu franska þingmanns Meyer Habib sem minntist Knoll á Facebook-síðu sinni.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira