Afar mjótt á munum þegar Bjarnheiður var kjörin nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. mars 2018 12:33 Bjarnheiður Hallsdóttir.
Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI ehf., er nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar en kosningu lauk í hádeginu og var munur með minnsta móti. Bjarnheiður hlaut 44,72% atkvæða gegn 44,62% Þóris Garðarssonar, stjórnarformanns Gray Line. Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Geysis, fékk 10,65% atkvæða. Aðeins munaði 72 atkvæðum á efstu tveimur sætunum en alls voru greidd 32.062 atkvæði. Fráfarandi formaður er Grímur Sæmundsen sem nú lætur af embætti. Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri hefur sömuleiðis nýlega tilkynnt um starfslok sín en hún mun ganga til liðs við Bláa lónið þann 1. júní þar sem Grímur er forstjóri.Að neðan má sjá kynningu Bjarnheiðar á vef SAF frá því í vikunni.Kæru félagar í Samtökum ferðaþjónustunnarÁ þeim þremur áratugum sem ég hef starfað í ferðaþjónustu hef ég fylgst af áhuga með ævintýralegum og sögulegum framgangi hennar og þróun – upp í það að vera nú stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Þau eru óteljandi úrlausnarefnin sem ferðaþjónusta á Íslandi stendur frammi fyrir um þessar mundir og hagsmunamálin sem standa þarf vörð um mörg. Má þar nefna gjaldtöku- og skattheimtumál, samgöngumál, náttúruvernd og umhverfismál. Þar þarf rödd fyrirtækjanna í greininni að vera fastmótuð og skýr. Eitt mikilvægasta verkefnið og undirstaða alls hins er að rannsóknir og kannanir sem lúta að ferðaþjónustu verði stórefldar. Að halda Íslendingum í liði með ferðaþjónustunni er sömuleiðis mjög aðkallandi verkefni í augnablikinu. Það er brýnt að verkefnin verði leyst með þekkingu og reynslu í farteskinu og ekki síður af fagmennsku og með langtímahugsun að leiðarljósi. Þar spila Samtök ferðaþjónustunnar lykilhlutverk, bæði hvað varðar innra starf og í samvinnu við stjórnvöld og íslensku þjóðina. Mig langar að leggja mitt af mörkum við að efla samtökin enn frekar og við verkefnin sem framundan eru og býð því fram krafta mína til formennsku SAF.Ferðaþjónusta er bæði starfið mitt og helsta áhugamál. Ég hef alla mína starfsævi unnið við ferðaþjónustu og fengið tækifæri til að kynnast henni frá mörgum ólíkum hliðum. Sem dæmi má nefna stefnumótunarverkefni fyrir landshluta og bæjarfélög, auk kennslu í Ferðamálaskóla MK og Háskóla Íslands um árabil.Mitt aðalstarf hefur þó alltaf verið við ferðaskipulagningu og ferðaheildsölu Íslandsferða og síðan árið 1997 í eigin rekstri, í fyrirtækjunum Katla Travel GmbH, Viator Summerhouses GmbH og Katla DMI ehf. Í dag starfa ég sem framkvæmdastjóri þess síðastnefnda. Við vinnum með öllum tegundum ferðaþjónustufyrirtækja um land allt og þekkjum því vel þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir hverju sinni.Ég hef tekið virkan þátt í starfsemi SAF í gegnum árin, hef verið í Ferðaskrifstofunefnd og hef setið í stjórn Rannsóknarmiðstöðvar Ferðamála fyrir hönd SAF síðastliðin 6 ár.Ég er fædd og uppalin á Akranesi, þar sem ég er búsett í dag. Ég lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og háskólaprófi í stjórnun ferðaþjónustufyrirtækja (Dipl. Betriebswirt) frá Fachhochshule München í Þýskalandi. Bjarnheiður Hallsdóttir
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira