Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu sakfelldur Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. apríl 2018 06:20 Stjórnlagadómstóll Suður-Kóreu svipti Park Geun-hye embætti forseta í mars í fyrra. Vísir/EPA
Park Geun-hye hefur verið dæmd fyrir að hafa misnotað vald sitt meðan hún gegndi embætti forseta Suður-Kóreu. Hún gæti átt yfir höfði sér 30 ára fangelsi og má búast við að þurfa að greiða hundruð milljóna íslenskra króna í skaðabætur.Verið er að lesa upp dóminn yfir Park þessa stundina og búast má við því að upplestrinum ljúki á næstu klukkustundum. Forsetinn fyrrverandi var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna en Park hefur ætíð haldið því fram að um pólitísk réttarhöld sé að ræða. Því hafi hún ákveðið að sniðganga þau með öllu. Hún var svipt embætti fyrir rétt rúmu ári en Park var grunuð um margvísleg brot í embætti. Milljónir Suður-Kóreumanna mótmæltu á götum úti þegar fregnir fóru að berast af framferði forsetans. Ákvað því stjórnlagadómstóll landsins að setja hana af og var hún að lokum ákærð í 18 liðum. Ákærurnar lutu að mútum, misbeitingu valds, þvingunum og leka á ríkisleyndarmálum. Vinkona Park er meðal annars sögð hafa nýtt sér tengslin við forsetann til að þvinga fyrirtæki til að greiða milljónir dollara til sjóða sem hún stjórnaði. Forsetinn fyrrverandi hafði kynnst henni í gegnum sértrúarsöfnuðinn sem hún hefur tilheyrt frá unga aldri. Heimildir herma að Park hafi jafnvel látið trúarlegar ráðleggingar vinkonu sinnar ráða miklu um stefnu sína meðan hún hélt um suður-kóresku stjórnartaumanna. Park hefur ætíð neitað sök.
Tengdar fréttir Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu handtekinn Park Geun-hye er sökuð um mútur, misbeitingu valds, þvinganir og að leka ríkisleyndarmálum. 30. mars 2017 20:23 Forseti Suður-Kóreu hrökklast úr höllinni Park Geun-hye gæti átt yfir höfði sér saksókn vegna spillingar. Hún yfirgaf forsetahöllina í dag eftir að hún var svipt embætti á föstudag. 12. mars 2017 11:05 Vinkona forseta Suður-Kóreu neitar sök Vinkona Park Geun-hye hefur verið miðpunktur mikils hneykslismáls í landinu að undanförnu. 19. desember 2016 14:22 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu handtekinn Park Geun-hye er sökuð um mútur, misbeitingu valds, þvinganir og að leka ríkisleyndarmálum. 30. mars 2017 20:23
Forseti Suður-Kóreu hrökklast úr höllinni Park Geun-hye gæti átt yfir höfði sér saksókn vegna spillingar. Hún yfirgaf forsetahöllina í dag eftir að hún var svipt embætti á föstudag. 12. mars 2017 11:05
Vinkona forseta Suður-Kóreu neitar sök Vinkona Park Geun-hye hefur verið miðpunktur mikils hneykslismáls í landinu að undanförnu. 19. desember 2016 14:22