Manchester United getur ekki stækkað Old Trafford eins og Liverpool gerði með Anfield Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2018 12:30 Sir Bobby Charlton stúkan á Old Trafford. Vísir/Getty
Manchester United gæti stækkað Sir Bobby Charlton stúkuna á Old Trafford en allt bendir til þess að þeir láti ekki verða að því. Manchester United mun ekki stækka heimavöllinn sinn Old Trafford í næstu framtíð ef marka má frétt Simon Stone á BBC í dag. Old Trafford er í dag stærsti leikvangur ensks félagsliðs en hann tekur rúmlega 73 þúsund í sæti. Forráðamenn Manchester United þurftu að fækka aðeins sætunum á dögunum til að búa til betra aðgengi fyrir fatlaða. Áður komust fyrir rétt tæplega 76 þúsund manns. Manchester United hefur stækkað Old Trafford völlinn á síðustu áratugum og það var fjölgað síðast um átta þúsund sæti milli júlí 2005 og maí 2006. Það er pláss til að stækka Sir Bobby Charlton stúkuna en það er stúkan þar sem varamannabekkirnir og heiðursstúkan er. Það eru til plön sem myndu þýða stækkun upp í 88 þúsund manna völl þar sem stærsta viðbótin kæmi í umrædda stúku. Tottenham og Chelsea eru að stækka við sig og geta á meðan spilað heimaleiki sína á Wembley-leikvanginum. Manchester United hefur aftur á móti engan slíkan valkost fari félagið í framkvæmdir við Old Trafford. Framkvæmdir við Sir Bobby Charlton stúkuna þykja það flóknar í framkvæmd að það þykir ekki vera raunhæft að fara í þær á næstunni. Liverpool náði að stækka stúku á Anfield án þess að hætta að spila á vellinum en það er ekki raunhæfur möguleiki fyrir Manchester United. Eitt af stóru vandamálinum við að stækka Sir Bobby Charlton stúkuna tengjast einnig lestarteinunum sem eru fyrir aftan hana auk húsanna upp við völlinn.
Enski boltinn Mest lesið Danmörk - Ísland | Undanúrslit í gini ljónsins Handbolti Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti Alfreð í úrslitaleikinn eftir sigur á Degi Handbolti Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport EM-Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands gegn Danmörku Handbolti „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti Portúgölsku bræðurnir sendu Svía sára heim Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira