„Gjörsamlega glórulaust“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. janúar 2026 18:16 Snorri Steinn furðar sig á ýmsu en einblínir á leikinn. Vísir/Vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, furðar sig á ýmsu í kringum komandi úrslitahelgi í Herning. Hann segir þó engar afsakanir vera fyrir strákana okkar og nennir sem minnst að spá í utanaðkomandi aðstæðum.
Ísland mætir Danmörku í undanúrslitum á EM annað kvöld klukkan 19:30. Fyrr um daginn eigast við Króatía og Þýskaland, þjálfuð af Degi Sigurðssyni og Alfreð Gíslasyni. Klippa: Snorri ræðir hitamálin, undanúrslitin og Dani Tvennt hefur sérstaklega brunnið á fólki í aðdraganda komandi undanúrslita. Leikjaniðurröðun og miðamál. Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króata, fór mikinn á blaðamannafundi í Herning í dag í aðdraganda leiks Króatíu við Þýskaland í undanúrslitum þar sem hann hreinlega hraunaði yfir Handknattleikssamband Evrópu, EHF. Ísland er í sömu stöðu og Króatía hvað hvíldina og ferðalag varðar. Á meðan Danir hafa verið á sama stað allt mótið og spilað annan hvern dag spilaði Ísland tvo síðustu leikina í milliriðli á sólarhring og þurfti að ferðast rúma þrjá klukkutíma í rútu í dag frá Malmö til Herning. Hvað þykir Snorra um málið? „Auðvitað er þetta bara skrýtið. Þetta er ekki eðlilegt fyrirkomulag en hvort að það hafi einhverja þýðingu eða að ég hafi einhverja sterka skoðun á því. Þarna eru bara einhverjir jakkafataklæddir EHF-gæjar á ráðstefnu að raða þessu saman.“ „Þetta er skrýtið en við breytum þessu ekkert. Þetta lá fyrir og við erum ekki að fara að hengja okkur á þetta núna. Við græðum ekkert á því,“ segir Snorri Steinn. Trúir því ekki en nennir ekki að pæla í því Miðamál hafa einnig verið til umræðu. Íslendingar verða um 150 í höllinni á morgun gegn tæplega 14 þúsund Dönum sem keyptu upp alla miða fyrir löngu síðan. Snorri segir það heldur enga afsökun, þó furðulegt sé fyrirkomulagið. „Við skulum alveg hafa það á hreinu að þetta mun ekki hafa áhrif á leik liðsins á morgun og þetta er ekki ástæða fyrir því að eitthvað gerist eða gerist ekki í leiknum,“ „En það segir sig sjálft að í 15 þúsund manna höll að það séu 100 miðar fyrir þjóð sem kemst í undanúrslit er gjörsamlega glórulaust. Það er ekki hægt að tala neitt öðruvísi um það. Þetta er svo ótrúlegt að ég trúi þessu ekki og nenni ekki að pæla í þessu,“ segir Snorri Steinn. Töluvert fleira kemur fram í viðtali við Snorra sem sjá má í spilaranum.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira