Messan: Enginn í Liverpool borg vill halda Allardyce Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 30. apríl 2018 12:30
Sam Allardyce er ekki vinsælasti maður Liverpool borgar og stuðningsmönnum Everton líkar ekkert sérstaklega vel við stjórann sinn. Hjörvar Hafliðason sagðist ekki eiga von á að Allardyce nái öðru tímabili með félaginu. Allardyce tók við liði Everton í nóvember af Ronald Koeman og náði að hífa það úr fallbaráttunni og upp í áttunda sæti deildarinnar. Strákarnir í Messunni tóku Allardyce fyrir í gær og ræddu möguleika hans í starfi. „Mér finnst hann hafa gert príðilega hluti með Everton-liðið. Hann var ekki vinsælasti maðurinn í Liverpool borg þegar hann kom en hann hefur náð í punkta,“ sagði Ólafur Kristjánsson, einn sérfræðinga Messunnar og þjálfari FH í Pepsi deild karla. „Ég myndi segja að Everton sé einu sæti frá því að vera á réttum stað miðað við fjármuni. Þú ert með topp sex þar sem Everton á ekkert heima í, sjöunda sæti væri eðlilegt fyrir Everton,“ sagði sérfræðingurinn Hjörvar Hafliðason. Allardyce skrifaði undir tveggja ára samning við Everton en umræðan í fótboltaheiminum er að hann hætti hjá félaginu eftir þetta tímabil. „Ef þú horfir á árangurinn og hvaða úrslitum hann nær þá þætti manni skrítið að láta hann fara. En bara eins og stemmingin er þarna í borginni, það vill enginn halda honum,“ sagði Hjörvar. „Hann er óhemju óvinsæll í Liverpool borg og hann á ekki „break.“ Knattspyrnuáhugamenn í Liverpool eru öðruvísi en annars staðar í Englandi, þeir lifa gjörsamlega fyrir þetta og Everton stuðningsmenn munu ekki sætta sig við annað tímabil af Sam Allardyce.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Stjóri Gylfa á ekki von á góðu í þessari könnun Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, hefur ekki náð að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins síðan að hann tók við af Ronald Koeman í nóvember. 18. apríl 2018 10:30 Stóri Sam kveðst ekki geta gert betur Óvíst er um framtíð Sam Allardyce hjá Everton en hann er ekki vinsæll á meðal stuðningsmanna félagsins þrátt fyrir að hafa staðið sig vel að eigin sögn. 29. apríl 2018 11:30 Mest lesið Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Handbolti Alfreð stóð með Degi: „Ekki eins og best verður á kosið“ Handbolti Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Handbolti „Þá myndu þeir ljúga að mér“ Handbolti Sigvaldi kallaður inn í íslenska hópinn Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira
Stjóri Gylfa á ekki von á góðu í þessari könnun Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, hefur ekki náð að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins síðan að hann tók við af Ronald Koeman í nóvember. 18. apríl 2018 10:30
Stóri Sam kveðst ekki geta gert betur Óvíst er um framtíð Sam Allardyce hjá Everton en hann er ekki vinsæll á meðal stuðningsmanna félagsins þrátt fyrir að hafa staðið sig vel að eigin sögn. 29. apríl 2018 11:30